
Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.
það er að venju fjölbreyttur og fróðlegur Kiljuþáttur á miðvikudagskvöld. Eva Björg Ægisdóttir segir frá spennusögunni Myrkravaldi sem hún skrifar ásamt frönskum rithöfundi, Jérôme Loubry að nafni. Við fjöllum um merkilegan mann en allsendis óþekktan, Guðmund Arnfinnsson - en um hann flytur Kristján Guðjónsson útvarpsþátt á Rás 1 á páskadag. Guðmundur var bók- og listhneigður einfari, samdi kvæði og vísur, málaði og batt inn bækur, og kom sér upp gríðarlegu bókasafni. Það er nú varðveitt á Hraunhálsi á Snæfellsnesi, í vélaskemmu sem hefur verið breytt í bókahús. Við brugðum okkur þangað og spjöllum við húsráðanda, Jóhannes Eyberg Ragnarsson. Hrannar Bragi Eyjólfsson hefur ritað ævisögu afa síns, séra Braga Friðrikssonar, og segir okkur frá henni. Í Bókum og stöðum förum við í Árneshrepp á Ströndum þar sem verða á vegi okkar Hrafn Jökulsson, Vigdís Grímsdóttir og Þórður kakali. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um Silfurgengið eftir Brynhildi Þórarinsdóttur, Vininn eftir Sigrid Nunez og Líf eftir Reyni Finnberg Grétarsson.