
Teiknimyndaþættir fyrir börn byggðir á samnefndri breskri barnabók frá árinu 1994 eftir Sam McBratney, með myndskreytingum eftir Anitu Jeram. Bókin hefur verið gefin út á yfir 53 tungumálum og selst í yfir 28 milljónum eintaka.
Danni tígur er þáttaröð sem kennir börnum að túlka tilfinningar sínar. Hvenær upplifa þau sorg, reiði og hvenær eru þau þakklát. Danni notar tónlist og syngur um það sem hann upplifir sem leyfir börnum að tileinka sér það frekar. Þátturinn er ætlaður leikskólabörnum og kennir tilfinningagreind og sjálfsvirðingu sem og virðingu fyrir öðrum.
Matthías Már Magnússon tekur á móti tónlistarfólki sem veitir innsýn í líf sitt og flytur nokkur af vinsælustu lögunum sínum í bland við nýjar ábreiður. Í þáttunum fá áhorfendur að sjá nýjar hliðar á mörgu af áhugaverðasta tónlistarfólki landsins. Þættir frá 2021.
Sumarið 2013 réðust íbúar Vestmannaeyja og Hornafjarðar í umfangsmiklar framkvæmdir í samstarfi við færustu hönnuði landsins. Þeir máluðu, smíðuðu og gerðu upp gömul hús og gáfu ný hlutverk. Umsjónarmaður: Guðrún Dís Emilsdóttir. Handrit og stjórn framleiðslu: Þórhallur Gunnarsson. Dagskrárgerð: Sigurður R. Jakobsson.
Ástin er mikil ráðgáta og í þessum dönsku þáttum er gerð tilraun til að finna lykilinn að henni. Getur verið að hann sé að finna í magni persónulegra gagna? Til að sannreyna vísindin á bak við Big Data eru átta einhleypir einstaklingar paraðir saman út frá persónuupplýsingum. Mun ástin kvikna þegar fólkið fer að búa saman og kynnast nánar?
Fróðlegur og skemmtilegur þáttur um fólk sem á rætur um allan heim, en hefur af ólíkum ástæðum sest að á Íslandi. Næstum því einn af hverjum tíu íbúum Íslands er af erlendum uppruna. Sumir komu hingað af því að þá langaði til þess, aðrir áttu fáa aðra kosti. Einhverjir ætluðu bara rétt aðeins að staldra við, en ílentust óvart á lítilli eyju í norðri. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir og Ragnheiður Thorsteinsson.
Við fjöllum um hvernig það er að vera útlendingur á íslenskum vinnumarkaði. Við hittum austurrískan afa sem býr til hundasúrusúpu á vorin, þegar súrurnar eru nýsprottnar. Svo rifjum við upp komu víetnamskra flóttamanna til Íslands. Fyrst komu rúmlega 30 manns árið 1979 og svo 60 manns á árunum 1990 og 1991.
Fyrstu íslensku miðaldahandritin komu heim frá Danmörku 21. apríl 1971. Þúsundir manna á öllum aldri fögnuðu því á hafnarbakkanum. Í þættinum verður saga heimkomu handritanna sögð með því að heyra margar ólíkar raddir, bæði íslenskar og danskar, sem rekja ástæður þess að það tók frændþjóðirnar langan tíma að semja um hvar þau skyldu varðveitt. Nú þegar helmingur handritasafns Árna Magnússonar hefur verið á Íslandi í hálfa öld er einnig horft til framtíðar og spurt hvaða vitnisburð handritin geyma fyrir komandi kynslóðir.
Matreiðsluþættir með Kristni Guðmundssyni. Eftir að Kristinn varð pabbi fór hann að elda ofnrétti oftar. Þar sem hann er vanur að fara ótroðnar slóðir eldar hann alla réttina í eldofni sem hann byggði með vinum sínum í Norður-Frakklandi. Dagskrárgerð og framleiðsla: Kristinn Guðmundsson.
Sverrir Þór Sverrisson, betur þekktur sem Sveppi, og Gunnar Karl Gíslason, Michelin-kokkur, ferðast um landið og kynnast matarmenningu þjóðarinnar. Í þriðju þáttaröð Veislunnar leiða þeir félagar áhorfendur í ævintýraferðir um hinar ýmsu eyjar.
Það þekkja ef til vill færri hina Flateyna, Flatey á Skjálfanda, sem er næsti áfangastaður Sverris Þórs og Gunnars Karls. Veðrið leikur við þá félaga á leiðinni og þeir hlaða í matarkistuna sína fyrir veislu í stórbrotinni náttúrufegurðinni fyrir norðan.
Fjórða og síðasta þáttaröðin um ítölsku vinkonurnar Elenu og Lilu. Þættirnir eru byggðir á Napólí-sögum rithöfundarins Elenu Ferrante, sem farið hafa sigurför um heiminn. Vinkonurnar eru á fullorðinsaldri og lifa ólíku lífi en vináttan heldur enn. Aðalhlutverk: Alba Rohrwacher, Irene Maiorino og Fabrizio Gifuni. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Heimildarmynd frá 2022 um fyrstu metalhljómsveitina í Líbanon sem er eingöngu skipuð konum.
