
Teiknimyndaþættir fyrir börn byggðir á samnefndri breskri barnabók frá árinu 1994 eftir Sam McBratney, með myndskreytingum eftir Anitu Jeram. Bókin hefur verið gefin út á yfir 53 tungumálum og selst í yfir 28 milljónum eintaka.
Vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
Þegar afi ykkar er búin að þjálfa ykkur sem skrímslaveiðimenn, þá er ekkert annað í stöðunni en að veiða öll skrímslin! Það er þó eitt vandamál, krakkarnir elska skrímslin og vilja helst bara bjarga þeim. Það geta þau gert á meðan afi blundar, eða hvað?
Elías er ungur og áhugasamur björgunarbátur. Hann er ósvífinn, fjörugur og mikils metinn í heimabæ sínum. Vinir Elíasar skipta honum öllu máli og leggur hann í hvaða ævintýri sem er til þess að bjarga vinum sínum úr ógöngum.
Karla er 8 ára kjúklingur, sem hefur það að markmiði að halda öllum ánægðum, svo lengi sem það kemur ekki niður á lífi hennar. Hún elskar skólann sinn og alla vini sína. Hún leggur hart að sér til að þóknast öllum, en stundum ganga hlutirnir ekki alveg eins og áætlað var. Í þessum þáttum eru félagsleg samskipti og tilfinningar þeim tengd könnuð út frá heimi krakkanna. Hvað er rétt og hvað er rangt? Getur maður átt fleiri en einn besta vin?
Teiknimyndaþættir um Lóu sem er 12 ára og býr með mömmu sinni í stórborg. Lóu finnst hún ekki lengur vera barn og ekki alveg vera unglingur ennþá og reynir að takast á við allar þær tilfinningar sem vakna þegar unglingsárin eru að hefjast.
Loft hefur tekið jarðormana í sátt og kynnist nú ævintýralegri tilvist þeirra í gegnum sjónaukann sinn og endurspeglar sjálft sig í þeim.
Áróra fer á ferðalag með Loft út í geim og þar hitta þau tja.... frekar furðulega veru!
Þrjár leiknar stuttmyndir úr smiðju ungra höfunda sem framleiddar voru í tengslum við verkefnið Sögur hjá KrakkaRÚV. Handritin að stuttmyndunum þremur, Einhyrningurinn og kanínan , Óvæntar fréttir og Hvað er í gangi? voru valin í handritasamkeppni Sagna og eru höfundarnir á aldrinum 9-12 ára.
Þrjár leiknar stuttmyndir úr smiðju ungra höfunda sem framleiddar voru í tengslum við verkefnið Sögur hjá KrakkaRÚV. Handritin að stuttmyndunum þremur, Einhyrningurinn og kanínan , Óvæntar fréttir og Hvað er í gangi? voru valin í handritasamkeppni Sagna og eru höfundarnir á aldrinum 9-12 ára.
Edduverðlaunaþættir frá 2016 úr smiðju Ævars vísindamanns. Sem fyrr kannar Ævar furðulega og spennandi hluti úr heimi vísindanna. Hann fer meðal annars í svaðilför til Surtseyjar og rannsaka stærstu tilraun í heimi. Stórskemmtilegir þættir fyrir alla fjölskylduna. Dagskrárgerð: Gunnar B. Gudmundsson og Ævar Þór Benediktsson.
Í þessum þætti skoðum við stærðfræði og alls kyns furðuleg stærðfræðidæmi, vísindamaður dagsins er Alan Turing og að lokum ætlum við að reyna að búa til Dauðahafið.
Heimildarþáttaröð um íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu, upphafsár þess og sögu, sigra og ósigra. Liðið er eitt þeirra fremstu í heiminum og stjörnur þess með þekktustu íþróttamönnum þjóðarinnar. En leið kvennalandsliðsins á þann stað sem það er á í dag var allt annað en greið.
Árið 1981 ákveður KSÍ að stofna kvennalandslið í knattspyrnu og stelpunar leika fyrsta landsleikinn við Skotland. Meðbyrinn er lítill og gagnrýnin er hávær – en baráttan er hafin.
Ferðaþættir þar sem leikarinn Örn Árnason bregður sér í hlutverk leiðsögumanns og ferðast um áhugaverða staði við þjóðveginn eða örskammt frá. Frikki Frikk, tökumaður og ljósmyndari, er fylgdarsveinn Arnar í þessum ferðum og saman sýna þeir fram á að stundum er óþarfi að leita langt yfir skammt. Léttir þættir þar sem fjallað er um náttúru, sögu og menningu.
Danskur heimildaþáttur frá 2020. Søren Rasted er orðinn 50 ára og ætlar að taka heilsuna í gegn. Hann hættir að reykja og minnkar áfengisneyslu en ætti hann að hætta að borða kjöt? Hvers vegna gerist fólk vegan og hvað þýðir það? Er hægt að vera vegan í hjáverkum? Hann kynnir sér málið og ræðir við fólk með ólíkar skoðanir.
Heimildarmynd frá 1991 um Svavar Guðnason listmálara.
Í myndinni er listamannsferill Svavars rakinn, en hann var brautryðjandi í íslenskri abstraktlist. Rætt er við Eijler Bille, Robert Dahlman Olslen, ævivin Svavars, Jóhannes Jóhannesson listamann, Björn Á Guðjónsson og Ástu Eiríksdóttur, eftirlifandi konu Svavars. Handrit og umsjón: Hrafnhildur Schram og Júlíana Gottskálksdóttir. Dagskrárgerð: Þór Elís Pálsson.
Fjallað er um Íslendinga sem settu svip sinn á íslenskt samfélag um sína daga með margvíslegum hætti. Þættirnir spegla jafnframt sögu þjóðarinnar og samtíð á ýmsum tímum, menningu, listir, stjórnmál og fleira. Þeir eru byggðir á efni úr safni RÚV á nærfellt hálfrar aldar tímabili. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Ásgerður var frumkvöðull nútíma veflistar á Íslandi. Að loknu námi í Myndlista- og handíðaskólanum um miðjan fimmta áratuginn hóf hún nám í Konunglegu listaakademíunni í Kaupmannahöfn. Verk eftir Ásgerði prýða margar stofnanir og listasöfn bæði hér heima sem og erlendis.
Sænskir heimildarþættir frá 2022. Eftir að Ingvar Kamprad, stofnandi IKEA, lést árið 2018, arfleiddi hann Norrland í Svíþjóð fúlgu fjár, en ekki Smálönd þar sem hann fæddist. Ákvörðunin vakti mikla undrun auk þess sem skiptar skoðanir voru um hvernig ætti að nota peningana.

Húsálfurinn Bolli, sem býr á skrifborði hins 11 ára gamla Bjarma, fær óvæntan herbergisfélaga þegar skólaálfurinn Bjalla smyglar sér heim í pennaveskinu. Bolli og Bjalla ákveða að búa til skemmtilegasta sjónvarpsþátt veraldar: Stundina okkar. Í þættinum eru það krakkarnir sem slá í gegn, hvort sem það er í spurningakeppninni Frímó, við bakstur eða með ofursvala bílskúrsbandinu Stundin rokkar.
Í þessum þætti kemur bobb í bátinn, þegar síminn þeirra Bolla og Bjöllu verður fyrir óhappi og framtíð íslensks barnaefnis er í húfi.
Máni og Ylfa kenna okkur að búa til bananamúffur, sem er tilvalið að útbúa eftir skóla og Naggarnir mæta Nótunum í Frímó.
Nýi heimilsfræðikennarinn hún Hrefna, fer með nemendur sína á matreiðsluferðalag um heiminn í allan vetur, þar sem við kynnumst hinum ótrúlegustu réttum frá ýmsum löndum. Matráðsmeistarar eru: Hrefna Hlynsdóttir, Emilía Dröfn Davíðsdótir, Garðar Eyberg Arason, Kría Burgess og Sigurður Hilmar Brynjólfsson.
Krakkarnir læra að elda spænska tortillu.
Stundin okkar kíkir í heimsókn til danshópa og dansskóla til að fræðast um mismunandi dansstíla. Ungir dansarar sýna dans og segja okkur frá hvers vegna þeim finnst gaman að dansa.
Frábærir dansarar í Dansi Brynju Péturs segja okkur frá hip hop dansi og sýna okkur flottan dans.
Dansarar:
Sunna Björg Sigurðardóttir
Kristín Hallbera Þórhallsdóttir
Vanissa Dahlia Maria Rúnarsdóttir Blaga
Emilía Björt Böðvarsdóttir
Elena Bilic
Rommel Ívar Quiamco Patagoc
Eva Natalie Eiríksdóttir
Nikolas Eldrich
Fjórir krakkar í rokkhljómsveit æfa þekkt íslenskt rokklag og semja eigið lag. Í leiðinni fræðumst við um hljóðfærin í hljómsveitinni og rokktónlistarsöguna.
Hljómsveitin Gulu kettirnir heldur áfram að semja sitt eigið lag og flytur svo lokaútgáfuna. Hljómsveitarmeðlimir: Aldís María Sigursveinsdóttir, Fatíma Rós Joof, Hilmir Þór Snæland Hafsteinsson og Sigurður Ingvar Þórisson. Theramín leikari: Hekla Magnúsdóttir. Tónlistarstjóri: Sigurður Ingi Einarsson.
Stutt umfjöllun Sumarlandans sem var á flakki sumarið 2021 og hitti landann fyrir í sínu náttúrulega umhverfi, uppi á fjöllum, úti í garði, inni í skógi og allt um kring. Umsjónarmenn: Gísli Einarsson, Guðríður Helgadóttir, Hafsteinn Vilhelmsson, Helga Margrét Höskuldsdóttir, Þórhildur Þorkelsdóttir og fleiri.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Bein útsending frá skemmtilegustu verðlaunahátíð landsins í Borgarleikhúsinu, þar sem við verðlaunum það sem vel var gert í barnamenningu á Íslandi á söguárinu sem er að líða. Kynnar hátíðarinnar eru Sandra Barilli og Ágúst Þór Brynjarsson.

Dönsk ævintýramynd fyrir fjölskylduna frá 2018. Jas er 13 ára drengur sem býr einn með föður sínum. Dag einn þegar Jas er einn heima finnur hann dularfulla unga stúlku og gamla konu í hlöðunni við bæ þeirra feðga. Hann kemst að því að þær eru álfar á flótta og ákveður að hjálpa þeim. Leikstjórn: Jeppe Vig Find og Marie Dalsgaard Rønn. Aðalhlutverk: Albert Rudbeck Lindhardt, Flora Ofelia Hoffmann Lindahl, Arien Alexander Takiar og Vigga Bro.

Bresk gamanmynd frá 2014 eftir Israel Horovitz. Bandaríkjamaður sem erfir íbúð í París bregður í brún þegar hann kemst að því að hann má ekki rifta leigusamningi við mæðgur sem búa í íbúðinni. Aðalhlutverk: Maggie Smith, Kevin Kline og Kristin Scott Thomas. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Breskir spennuþættir. Raðmorðingi hlutar fórnarlömb sín niður og notar líkamspartana til að búa til eins konar mennska tuskubrúðu. Sveit rannsóknarlögreglumanna eltist við hann en illvirkjanum tekst alltaf að vera skrefi á undan. Málið vandast enn frekar þegar listi yfir næstu fórnarlömb birtist og einn lögreglumaðurinn er á honum. Aðalhlutverk: Lucy Hale, Henry Lloyd-Hughes og Thalissa Teixeira. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.