Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.
Brottvísun 17 ára pilts frá Kólumbíu var frestað í vikunni að ósk formanns allsherjarnefndar Alþingis. Í skeyti til ríkislögreglustjóra og útlendingastofnunar kom fram að yfirgnæfandi líkur væri á að að piltinum yrði veittur ríkisborgararéttur á næstu dögum. Alþingi hefur heimild til að veita ríkisborgararétt en vinnubrögðin í málinu hafa verið gagnrýnd. Víðir Reynisson, þingmaður Samfylkingarinnar og formaður allsherjar- og menntamálanefndar, og Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem situr líka í nefndinni, voru gestir Kastljóss.
Fjórar ballerínur hafa stofnað nýjan dansflokk sem nefnist Ballet Axis og frumsýnir sitt fyrsta verk á Fringe festival í Tjarnarbíói. Við settum okkur í þeirra spor.
24 stærstu sveitarfélög landsins keppa sín á milli í skemmtilegum spurningaleik. Sigmar Guðmundsson og Þóra Arnórsdóttir stýra þættinum. Dómari og spurningahöfundur er Ólafur Bjarni Guðnason. Útsendingu stjórnar Helgi Jóhannesson.
Þáttaröð frá 2009 þar sem Eva María Jónsdóttir ræðir við nokkra af ástsælustu leikurum þjóðarinnar. Dagskrárgerð: Haukur Hauksson.
Bryndís Pétursdóttir var uppgötvuð, þar sem hún starfaði á unglingsaldri sem sætavísa í Tjarnarbíói. Hún fékk tækifæri til að leika í nokkrum af kvikmyndum Lofts Guðmundssonar á 5. áratugnum og vakti töluverða athygli. Bryndís veiktist af þessum völdum af leiklistarbakteríunni og hefur ekki almennilega læknast síðan. Hún segir frá hvernig stelputrippi rekur sig á í hörðum heimi leiklistarinnar og ræðir um vel nýtt og ónýtt tækifæri í þessu listformi. Bryndís lék í Þjóðleikhúsinu um áratugaskeið og hafði sig lítið í frammi. Hennar „endurkoma“ var í hinni umdeildu sjónvarpsmynd Hrafns Gunnlaugssonar, Vandarhöggi, en þar lék hún með skegg og gerði stormandi lukku. Í þættinum um Bryndísi má sjá brot úr fyrstu talmyndum sem gerðar voru á Íslandi, en í þeim lék Bryndís aðal-kvenhlutverkin.
Félagarnir og fyrrum Hraðfréttamennirnir Benni og Fannar réðu sig sem háseta á frystitogarann Hrafn Sveinbjarnarson frá Grindavík. Í þáttunum fáum við að fylgjast með strákunum í ævintýralegum 30 daga túr. Dagskrárgerð: Benedikt Valsson og Fannar Sveinsson. Framleiðsla: Skot.
Hvaða íslensku dægurlög hafa hljómað fyrst og fremst á Rás 2 síðustu 40 ár? Hvað einkennir síðustu fjóra áratugi í íslenskri tónlist? Þessum spurningum og fleirum verður svarað í Fyrst og fremst, laufléttum þáttum sem fanga uppáhaldslögin af Rás 2 á 40 ára afmælinu. Umsjón: Kristján Freyr Halldórsson.
Ferðaþættir í umsjá útivistarhjónanna Brynhildar Ólafsdóttur og Róberts Marshall þar sem þau ferðast með fólki um ósnortna náttúru Íslands.
Í þessum þætti er stórum gönguhópi fylgt uppá Hrútsfjallstinda í Öræfasveit en þeir eru einhverjir mögnuðustu fjallstoppar Íslands. Gestir þáttarins eru þau Guðný Ragnarsdóttir sem notaði útivist og fjallgöngur til að ná heilsu eftir erfið veikindi og Hjalti Björnsson, fjallaleiðsögumaður.
Í síðari hluta þáttarins er farið á fjallahjólum um hið stórkostlega Veiðivatnasvæði á miðju hálendi Íslands og með í för er Sölvi Tryggvason lífstílsfyrirlesari og rithöfundur.
Hver skrifar sögu okkar? Það fer eftir ýmsu, svo sem þjóðerni, kyni eða uppruna, og sama atburði má lýsa á marga mismunandi vegu. Fornleifauppgröftur, nýjar rannsóknir eða annar tíðarandi getur líka valdið því að sagnfræðin verði endurskoðuð. Emma Molin og Özz Nûjen hjálpa okkur að sjá fleiri en eitt sjónarhorn á sögunni.

Stuttmyndir sem gerðar eru eftir handritum krakka sem að send voru inn í Sögur árið 2023. Handrit: Árdís Eva Árnadóttir, Berglind Rún Sigurðardóttir, Freydís Erla Ómarsdóttir, Lovísa Rut Ágústsdóttir og Valgerður Ósk Þorvaldsdóttir. Leikstjórn og framleiðsla: Hekla Egils og Sturla Holm.
Keppni í skapandi þrautum. Skaparar og keppendur hafa 10 mínútur til að klára þraut og taka þátt í Stórhættulegu spurningakeppninni. Þegar tíminn er hálfnaður draga keppendur babb-spjöld. Að sjálfsögðu endar þetta á vænni slímgusu. Dagskrárgerð: Sigyn Blöndal og Sindri Bergmann Þórarinsson.
Ef þig langar að komast að því hvers konar ofurkrafta krakkarnir i Kveikt á perunni hafa þá er þetta myndbrot fyrir þig.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.
Miðborg Reykjavíkur hefur tekið stakkaskiptum á síðustu árum. Laugavegi hefur að stórum hluta verið breytt í göngugöngu, Mörg ný fyrirtæki hafa opnað meðan sumum rótgrónum verslunum hefur verið lokað eða rekstur þeirra fluttur annað. Skiptar skoðanir eru á hvort þessi þróun sé góð eða slæm. Við ræðum stöðuna við Hafdísi Þorleifsdóttur sem hefur ákveðið að flytja fataverslunina Gyllta köttinn eftir 20 ár í Austurstræti, og Sigrúnu Tryggvadóttur formann íbúasamtaka miðborgarinnar í þætti kvöldsins.
Ferðaþættir þar sem leikarinn Örn Árnason bregður sér í hlutverk leiðsögumanns og ferðast um áhugaverða staði við þjóðveginn eða örskammt frá. Frikki Frikk, tökumaður og ljósmyndari, er fylgdarsveinn Arnar í þessum ferðum og saman sýna þeir fram á að stundum er óþarfi að leita langt yfir skammt. Léttir þættir þar sem fjallað er um náttúru, sögu og menningu.
Þriðja þáttaröð þessara norsku leiknu þátta um samfélagið í Stafangri og breytingarnar sem urðu þegar olía fannst í sjónum úti fyrir bænum og norska olíuævintýrið hófst. Meðal leikenda eru Anne Regine Ellingsæter, Malene Wadel, Mads Sjøgård Pettersen og Pia Tjelta.
Úkraínsk spennuþáttaröð. Þegar þrjár ungar stúlkur finnast látnar með stuttu millibili í borginni Osijek í Króatíu ákveða tveir rannsóknarlögreglumenn og tveir blaðamenn að hjálpast að við að leysa málin, en rannsókn málsins leiðir þau á hættulegar slóðir. Aðalhlutverk: Kseniia Mishyna, Goran Bogdan og Darko Milas. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
Breskir dramaþættir frá 2023. Læknirinn Lucinda Edwards er virt og farsæl í starfi, en eitt örlagaríkt kvöld deyr einn sjúklingur hennar úr of stórum skammti af ópíóíðalyfi og allt breytist. Aðalhlutverk: Niamh Algar, James Purefoy og Lorne MacFadyen. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.