
24 stærstu sveitarfélög landsins keppa sín á milli í skemmtilegum spurningaleik. Sigmar Guðmundsson og Þóra Arnórsdóttir stýra þættinum. Dómari og spurningahöfundur er Ólafur Bjarni Guðnason. Útsendingu stjórnar Helgi Jóhannesson.
Úrslitaþáttur spurningakeppni sveitarfélaganna í Menningarhúsinu Hofinu á Akureyri. Lið Akureyrar og Norðurþings eigast við. Lið Akureyrar skipa: Hilda Jana Gísladóttir, Hjálmar Stefán Brynjólfsson og Birgir Guðmundsson. Lið Norðurþings skipa: Þorgeir Tryggvason, Kristveig Sigurðardóttir og Stefán Þórsson. Umsjónarmenn: Sigmar Guðmundsson og Þóra Arnórsdóttir. Spurningahöfundur og dómari: Ólafur B. Guðnason. Ingvar Alfreðsson leikur tóndæmi á flygil í nokkrum tónlistarspurningum. Aðstoð við dagskrárgerð: Sigríður Þóra Ásgeirsdóttir. Dagskrárgerð: Helgi Jóhannesson.

Þriggja þátta röð þar sem sænski söngvarinn Peter Jöback fer á slóðir átrúnaðargoða sinna, þeirra Franks Sinatra, Edith Piaf og Charles Aznavours í New York, París og Berlín.

Matreiðsluþættir með finnsku matreiðslukonunni Kiru sem töfrar fram ólíka rétti frá San Francisco.
Þáttaröð um eyðibýli á Íslandi. Þar sem á árum áður voru reisulegir sveitabæir með iðandi mannlífi standa nú húsin tóm. Rætt er um byggingu bæjanna og talað við fólk sem tengist stöðunum á einn eða annan hátt. Farið er í Suðurhús í Suðursveit, Hamra á Mýrum, Múlakot í Fljótshlíð, Öxney á Breiðafirði, Heiði á Langanesi og Vatnshorn í Skorradal. Umsjónamaður er Guðni Kolbeinsson og dagskrárgerð annaðist Björn Emilsson.
Íslensk þáttaröð í sex hlutum um dans. Þar er leitað svara við spurningum um hvers vegna fólk dansar, hvernig dansgleðin kviknar og hvers vegna sumir fæðast flinkir dansarar en aðrir taktlausir flækjufætur. Farið verður yfir sögu dansins á Íslandi, mismunandi danstegundir kannaðar og við kynnumst því hvernig dansinn brýst fram á ólíklegustu stöðum. Umsjón: Guðrún Sóley Gestsdóttir. Framleiðsla: Skot.
Dans getur bæði verið listgrein og afslöppuð tómstundaiðja. Stundum er hann settur í annað samhengi og verður að keppnisíþrótt. En hvernig er keppt í dansi og hvað er það sem er dæmt? Hvort er dans íþrótt eða list? Við ræðum við keppnisdansara og danslistamenn til að komast að niðurstöðu um þetta álitamál.

Finnsku sjónvarpskonunni Ellu Kanninen er hér fylgt eftir á ferðalagi um Suður-Ítalíu þar sem hún kynnir sér staðhætti, menningu og nýtur rómaðrar matargerðar.

Stuttmyndir sem gerðar eru eftir handritum krakka sem að send voru inn í Sögur árið 2022.
Tíminn stöðvast á afmælisdegi Emblu og vinaleg geimvera rænir henni og bróður hennar því að hún þarf hjálp þeirra til að koma tímanum aftur í gang. Handrit: Bryndís María Jónsdóttir. Leikstjórn : Hekla Egils. Aðalhlutverk: Bryndís María Jónsdóttir, Friðrik Bjarni Jónsson og María Carmela Torrini.

Önnur þáttaröð af Monsunum Kára, Villa og Hönnu sem lenda í alls kyns ævintýrum og þurfa að standa saman til að takast á við illmennið Ívar.

Fjörugir teiknimyndaþættir um ref, tvö villisvín og fugl sem eru orðin þreytt á að lifa villt í náttúrunni og verða sér úti um búninga til að dulbúast sem venjuleg gæludýr.

Gamansamir þættir um strútapabbann Edda og áttburana hans. Eddi strútapabbi er fullkomnunarsinni og reynir að gera allt sem í hans valdi stendur til að vernda áttburana sína. Hann á fullt í fangi með það, enda eru ævintýrin hjá stórri fjölskyldu mörg og ímyndunaraflið mikið.
Eddi strútapabbi er hræddur um að dóttir hans slasi sig, ef hún djögglar of þungum hlutum. Hann verður að trufla sýninguna áður en það gerist.

Stuttir þættir þar sem Hrúturinn Hreinn og vinir hans fara á kostum.

Vikinglottó-útdráttur vikunnar.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Heimildarþættir frá BBC um skurðlækna sem sérhæfa sig í aðgerðum á börnum í móðurkviði.

Stuttir heimildarþættir þar sem við fylgjumst með fólki byggja draumagufubaðið sitt.
Sannsögulegir þættir um sænska fjarskipta- og fjölmiðlakónginn Jan Stenbeck. Hann tók við fjölskyldufyrirtækinu af föður sínum við lok áttunda áratugarins og átti stóran þátt í að breyta Svíþjóð úr hefðbundnu iðnaðarsamfélagi í hátækniríki. Á sama tíma og hann átti velgengni að fagna í viðskiptalífinu einkenndist fjölskyldulíf hans af átökum og erjum. Aðalhlutverk: Jakob Oftebro, Zoe Boyle, Iréne Lindh og Malin Crépin.

Nýjustu fréttir og íþróttir kvöldsins. Alla mánudaga til fimmtudaga.

Veðurfréttir

Heimildarþáttaröð frá BBC um danstónlist. Fjallað er um þróun danstónlistar síðustu áratugi, næturklúbbana sem umbyltu skemmtanamenningunni og plötusnúðana sem voru í fararbroddi.
Breskir dramaþættir frá 2022. Þættirnir eru sannsögulegir og fjalla um hvernig aðgerðasinnar komu í veg fyrir morð á þingmanni Verkamannaflokksins og leystu upp hóp nýnasista. Aðalhlutverk: Stephen Graham, Leanne Best og Andrew Ellis. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.