24 stærstu sveitarfélög landsins keppa sín á milli í skemmtilegum spurningaleik. Sigmar Guðmundsson og Þóra Arnórsdóttir stýra þættinum. Dómari og spurningahöfundur er Ólafur Bjarni Guðnason. Útsendingu stjórnar Helgi Jóhannesson.
Þáttaröð frá árinu 2006 um íslenska einleikara sem allir hafa staðið framarlega í íslensku tónlistarlífi um lengri eða skemmri tíma. Umsjón: Jónas Sen. Dagskrárgerð: Jón Egill Bergþórsson.
Jónas Sen ræðir við Gunnar Kvaran sellóleikara.
Í átta þáttum ræðir Þóra Arnórsdóttir við konur sem hafa rutt brautina á hinum ýmsu sviðum mannlífsins. Rætt verður við fyrstu lögreglukonurnar, fyrsta prófessorinn, fyrstu konuna sem leiddi kvennalandslið, fyrsta prestinn, einn fremsta kvikmyndaklippara Íslands, einn fyrsta gullsmiðinn og fyrstu íslensku konuna sem söng lag inn á plötu. Dagskrárgerð: Eiríkur Ingi Böðvarsson.
Rætt við Ingibjörg Þorbergs sem fyrst kvenna á Íslandi söng eigið lag og texta inn á hljómplötu. Hún lauk einnig burtfrararprófi á klarínett frá Tónlistarskólanum sem var einsdæmi á þeim tíma.
Þáttaröð um eyðibýli á Íslandi. Þar sem á árum áður voru reisulegir sveitabæir með iðandi mannlífi standa nú húsin tóm. Rætt er um byggingu bæjanna og talað við fólk sem tengist stöðunum á einn eða annan hátt. Farið er í Suðurhús í Suðursveit, Hamra á Mýrum, Múlakot í Fljótshlíð, Öxney á Breiðafirði, Heiði á Langanesi og Vatnshorn í Skorradal. Umsjónamaður er Guðni Kolbeinsson og dagskrárgerð annaðist Björn Emilsson.
Í garðinum með Gurrý sýnir Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingur áhorfendum réttu handtökin við garðyrkjustörfin og fer í áhugaverðar heimsóknir. Dagskrárgerð: Björn Emilsson.
Heimsókn í skrautgarð Sólveigar Jónsdóttur og Ólafs R. Jónssonar. Kryddjurtir gróðursettar í ker. Niðursetning á laukum í ker.
Íslensk þáttaröð í sex hlutum um dans. Þar er leitað svara við spurningum um hvers vegna fólk dansar, hvernig dansgleðin kviknar og hvers vegna sumir fæðast flinkir dansarar en aðrir taktlausir flækjufætur. Farið verður yfir sögu dansins á Íslandi, mismunandi danstegundir kannaðar og við kynnumst því hvernig dansinn brýst fram á ólíklegustu stöðum. Umsjón: Guðrún Sóley Gestsdóttir. Framleiðsla: Skot.
Þörfin fyrir að dansa brýst út við ólíklegustu aðstæður. Við dönsum ein, umkringd fólki, í myrkri, sundi og á sjúkrahúsum. Dansgleðin er aðstæðum, kunnáttu og takmörkunum yfirsterkari og finnur sér alls staðar farveg. Í þessum þætti kynnumst við dansi sem lækningu og lausn á ýmiss konar vanda.

Gamansamir þættir um strútapabbann Edda og áttburana hans. Eddi strútapabbi er fullkomnunarsinni og reynir að gera allt sem í hans valdi stendur til að vernda áttburana sína. Hann á fullt í fangi með það, enda eru ævintýrin hjá stórri fjölskyldu mörg og ímyndunaraflið mikið.
Eddi strútapabbi er hræddur um að ofur segullinn sem dóttir hans býr til muni laða að sér alla þungu hlutina á heimilinu og valda slysi! Hvernig getur hann stoppað hana?
Ný íslensk stuttmynd fyrir ungt fólk. Myndin er viðbragð við auknu ofbeldi í garð hinsegin fólks og aukinni vanlíðan og hnífaburði ungmenna á Íslandi. Myndin var valin barna- og unglingamynd ársins á Eddunni 2025. Leikstjórar eru Sigríður Láretta Jónsdóttir og Sol Berruezo Pichon-Rivière. Framleiðendur eru Lea Ævarsdóttir og Anna Sæunn Ólafsdóttir fyrir NyArk Media og Benna Sörensen Valtýsdóttir fyrir Ofbeldisforvarnarskólann.
Geltu! er hluti af evrópsku herferðinni #B4H8 sem vinnur gegn hatursorðræðu.
Herferðina leiða samtökin OFSi (Ofbeldisforvarnarskólinn) ásamt evrópskum samstarfsaðilum. Frekari upplýsingar: ofbeldisforvarnir.is og nyarkmedia.com
Sannsögulegir þættir um sænska fjarskipta- og fjölmiðlakónginn Jan Stenbeck. Hann tók við fjölskyldufyrirtækinu af föður sínum við lok áttunda áratugarins og átti stóran þátt í að breyta Svíþjóð úr hefðbundnu iðnaðarsamfélagi í hátækniríki. Á sama tíma og hann átti velgengni að fagna í viðskiptalífinu einkenndist fjölskyldulíf hans af átökum og erjum. Aðalhlutverk: Jakob Oftebro, Zoe Boyle, Iréne Lindh og Malin Crépin.
Rannsóknarlögreglumaðurinn Tom Brannick snýr aftur í annarri þáttaröð þessara bresku sakamálaþátta. Brannick telur morð á spilltum endurskoðanda tengjast dularfullum leigumorðingja úr fortíðinni sem aldrei náðist. Aðalhlutverk: James Nesbitt, Lorcan Cranitch og Charlene McKenna. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Sænskir heimildarþættir frá 2022 sem fjalla um sakamál sem átti sér stað í Norður-Svíþjóð á áttunda áratug síðustu aldar þegar tveir hollenskir ferðamenn fundust myrtir í tjaldi. Leikna þáttaröðin Atburðir við vatn er byggð á þessu máli. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.