Umræðuþáttur í beinni útsendingu þar sem fólkið í landinu varpar fram spurningum og stendur fyrir máli sínu. Á Torginu er talað um málefnin sem rædd eru af kappi á kaffistofum landsins. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir og Baldvin Þór Bergsson. Stjórn upptöku: Þór Freysson.
Að undanförnu hafa margar fréttir verið sagðar af viðbúnaði á Íslandi tengdum ýmiss konar hamförum. En hvernig er staðan? Á Torginu var rætt um þjóðaröryggi og áfallaþol. Hvar stöndum við okkur vel og hvar þurfum við að gefa í? Og gefa fjölmiðlar rétta mynd af stöðunni eða er sífellt verið að teikna upp einhverja svarta mynd?
Gestir Torgsins voru þau:
Runólfur Þórólfsson, almannavörnum
Ingólfur Bjarni Sigfússon, fréttamaður og ritstjóri Kveiks
Rósa Magnúsdóttir, prófessor í sagnfræði.
Sóley Kaldal, áhættustýringar- og öryggisverkfræðingur
Skúli Bragi Geirdal sviðsstjóri Netöryggismiðstöðvar og sérfræðingur í miðlalæsi hjá fjölmiðlanefnd
Þóra Sigríður Einarsdóttir, sálfræðingur, með sérhæfingu í áföllum
24 stærstu bæjarfélög landsins keppa sín á milli í skemmtilegum spurningaleik. Sigmar Guðmundsson og Þóra Arnórsdóttir stýra þættinum. Dómari og spurningahöfundur er Ólafur Bjarni Guðnason. Útsendingu stjórnar Helgi Jóhannesson.
Í sjötta þætti eigast við lið Akureyrar og Fjallabyggðar. Lið Akureyringa skipa Arnbjörg Hlíf Valsdóttir, Finnur Friðriksson og Pálmi Óskarsson og fyrir Fjallabyggð keppa Jóna Vilhelmína Héðinsdóttir, Birkir Jón Jónsson og Inga Eiríksdóttir.
Heimildarþættir frá 2023. Í seinni heimsstyrjöldinni handtóku Bretar tæplega fimmtíu Íslendinga, fluttu þá til Englands og lokuðu þá inni mánuðum og árum saman án dóms og laga. Þáttaröðin Fangar Breta segir sögu þessa fólks á fróðlegan hátt.
Bretar sökuðu tíu Íslendinga um að vera njósnarar Þjóðverja og settu þá í leynilegt fangelsi. Tveir þeirra gerðust gagnnjósnarar Breta.
Gamansamir þættir um strútapabbann Edda og áttburana hans. Eddi strútapabbi er fullkomnunarsinni og reynir að gera allt sem í hans valdi stendur til að vernda áttburana sína. Hann á fullt í fangi með það, enda eru ævintýrin hjá stórri fjölskyldu mörg og ímyndunaraflið mikið.
Eddi strútapabbi er dauðhræddur um að barnið sitt hverfi í alvörunni þegar það setur á svið töfrasýningu.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.
Herskáar yfirlýsingar Donald Trump Bandaríkjaforseta um yfirráð yfir Grænlandi hafa skekið Norðurlönd, enda fordæmalaus framkoma af hálfu bandalagsríkis. Hvaða áhrif hefur þetta á Ísland, með annars vegar sitt rótgróna Norðurlandasamstarf, og hins vegar varnarsamning við Bandaríkin. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra er gestur Kastljóss
Skíðasvæðið í Skálafelli verður lokað í allan vetur, annað árið í röð. Til stóð að fara í uppbyggingu og viðhald fyrir nokkrum árum en framkvæmdir sem áttu að vera langt komnar eru ekki enn hafnar, og óljóst hvort verði af þeim yfir höfuð. Kastljós tekur stöðuna á Skálafelli.
Tónleikakvikmyndin Cornucopia, sem tekin var á samnefndri tónleikaröð Bjarkar, verður frumsýnd um mánaðarmótin, en myndinni er lýst sem sýndarveruleikaveislu. Við kynnum okkur myndina.
Ný íslensk þáttaröð þar sem Jóhann Kristófer Stefánsson kynnir sér fjölbreytta flóru íslenskra sviðslista. Leikstjóri: Gagga Jónsdóttir. Framleiðsla: 101 Productions.
Jóhann Kristófer kynnir sér sviðslistanám á Íslandi og víðar. Hann ræðir við fólk sem hefur stundað nám í sviðslistum og fræðist um möguleikana sem eru fyrir hendi.
Finnskir spennuþættir frá 2024. Þegar lest keyrir út af sporinu og veldur sprengingu í smábæ í Finnlandi fær Marita Kaila það hlutverk að leiða rannsókn á tildrögum slyssins. En rannsóknin dregur líka fram erfiðar minningar úr hennar eigin fortíð. Aðalhlutverk: Leena Pöysti, Mikko Kauppila og Juho Milonoff. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
Rússnesk heimildarþáttaröð þar sem reynt er að varpa ljósi á hvernig níu ungmenni létust á dularfullan hátt í gönguskíðaleiðangri í Úralfjöllum í febrúar 1959. Í yfir 60 ár hefur málið verið rannsakað og fjöldi kenninga komið fram, en hingað til hefur engum tekist að sanna hvað gerðist raunverulega þessa örlagaríku nótt. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.