Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra boðar fyrstu hallalausu fjárlögin síðan 2019 á næsta ári í fjármálaáætlun til næstu fimm ára. Áætlunin var kynnt í dag í skugga hækkandi verðbólgu, sem mælist nú 5,4 prósent. Daði Már var gestur Kastljós þar sem hann ræddi fjármálaáætlun og baráttuna við verðbólguna.
Nokkrir nemendur við Tónhyl akademíu voru búnir að fá sig fullsadda á bíómyndum um myrkur og morð á Íslandi. Þeir ákváðu því að gera eigin bíómynd og úr varð spennumyndin Undir ísnum, sem er komin í bíó. Við hittum kvikmyndargerðarmennina.

Bein útsending frá spurningakeppni sveitarfélaga. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Sólmundur Hólm. Spurningahöfundar: Ævar Örn Jósepsson og Jón Svanur Jóhannsson. Dómari: Ævar Örn Jósepsson. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.

Karl Ágúst, Pálmi, Sigurður, Randver og Örn bregða á leik sprellfjörugir að vanda. Stjórn upptöku: Björn Emilsson.

Matgæðingarnir og bræðurnir Adam og James Price ferðast um Bretland og töfra fram kræsingar sem eru vinsælar þar í landi.
Spurningakeppni framhaldsskólanna. Spurningahöfundar og dómarar eru Arnar Gunnarsson, Sigurlaugur Ingólfsson og Vilhjálmur Bragason. Spyrill er Helga Margrét Höskuldsdóttir. Stjórn útsendingar: Sturla Holm Skúlason.
Menntaskólinn í Reykjavík mætir Fjölbrautaskóla Suðurlands. Keppendur frá Menntaskólanum í Reykjavík: Hulda Filippía Andradóttir, Dóróthea Margrét Jakobsdóttir og Davíð Friðriksson Magnus. Keppendur frá Fjölbrautaskóla Suðurlands: Valgeir Gestur Eysteinsson, Hjálmar Vilhelm Rúnarsson og Hrafnhildur Svava Hemmert Sigurðardóttir.

Fylgstu með hugrökkum krökkum breytast í smáspæjara og takast á við fjölbreytt verkefni og ráðgátur í Krimmaborg. Með hjálp frá Spæjara X og Ninjo elta þau útsmogna skúrka og læra að vinna saman á skemmtilegan og spennandi hátt. Serían er með íslenskum texta.

Dana er 9 ára stelpa sem elskar risaeðlur. Líf hennar breytist til frambúðar þegar hún fær gefins handbók um risaeðlur, sem kennir henni ekki aðeins nýja hluti um dýrin, heldur gefur henni ofurkrafta sem gera henni kleift að sjá fyrir sér risaeðlur í raunveruleikanum.
Matilda er metnaðarfullur námsmaður og vill standa sig vel í skólanum. Hana dreymir líka um gott félagslíf, að skemmta sér jafn mikið og vinsælu jafnaldrar hennar - en hvernig fer hún að því? Hún pantar klón af sér á dularfullri vefsíðu og þarf skyndilega að takast á við tvífara sem tekur yfir líf hennar.
Það reynist erfitt að halda klóninu leyndu

Fróðlegir danskir þættir þar sem þáttastjórnendur rannsaka matinn sem við borðum dags daglega.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Brot af því besta úr Stúdíói RÚV. Þættir um íslenska dægurtónlist þar sem tónlistarfólk færir landsmönnum tónlist heim í stofu. Dagskrárgerð: Guðmundur Atli Pétursson og Sigurður Þorri Gunnarsson.

Gísli Marteinn tekur á móti góðum gestum á föstudagskvöldum í vetur og fer með þeim yfir helstu atburði vikunnar í stjórnmálum, menningu og mannlífi. Persónur og leikendur koma í spjall og brakandi fersk tónlistaratriði koma landsmönnum í helgarstemninguna. Stjórn útsendingar: Ragnar Eyþórsson.
Nýir breskir spennuþættir. Sherlock Holmes rannsakar alþjóðlegt glæpasamsæri og nýtur liðsinnis Ameliu, ungrar bandarískrar konu sem leitar bæði að föður sínum og morðingja móður sinnar. Aðalhlutverk: David Thewlis, Blu Hunt og Ardal O‘Hanlon.

Bandarísk verðlaunamynd frá 1990 í leikstjórn Tim Burtons. Edward er óklárað sköpunarverk uppfinningamanns sem lést áður en verkinu var lokið. Hann er einn og yfirgefinn þar til góðhjörtuð kona að nafni Peg tekur hann undir sinn verndarvæng og leyfir honum að búa heima hjá sér og fjölskyldu sinni. Aðalhlutverk: Johnny Depp, Winona Ryder og Dianne Wiest. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.