Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Ingvar Þóroddsson alþingismaður hefur sagt sig úr Viðreisn og gengið til liðs við Sjálfstæðisflokkinn, aðeins nokkrum vikum eftir að Jón Gnarr sagði sig úr þingflokki Viðreisnar. Áður hafði Guðmundur Ingi Kristinsson sagt sig úr Flokki fólksins. Við fjöllum um hvað þetta þýðir fyrir Viðreisn og stjórnarsamstarfið með Eiríki Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði.
Dagur íslenskrar tungu er í dag. Stjórnvöld hafa sent ákall til tölvurisans Apple um að hleypa íslensku inn í stýrikerfi fyrirtækins. En á sama tíma og stjórnvöld eru í sókn í tæknimálum óttast Háskóli Íslands um rekstrargrundvöll íslenskukennslu fyrir útlendinga, þar sem til stendur að rukka fulll skólagjöld fyrir nemendur utan EES-svæðisins. Við ræðum við Loga Einarsson, háskólaráðherra, og fáum til okkar þau Lilju Dögg Jónsdóttur, framvæmdastjóra Almannaróms, og Roberto Luigi Pagani, aðjúnkt við Háskóla Íslands.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Spurningakeppni framhaldsskólanna 2001. Spyrill er Logi Bergmann Eiðsson, Ármann Jakobsson er dómari og höfundur spurninga og stigavörður er Þóra Arnórsdóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Í þessari úrslitaviðureign frá árinu 2001 mætast lið Menntaskóalans í Reykjavík og Borgarholtsskóla. Keppt er í íþróttahúsinu Smáranum í Kópavogi. Fyrir MR keppa: Svanur Pétursson, Hjalti Snær Ægisson og Sverrir Teitsson. Fyrir Borgarholtsskóla keppa: Hilmar Már Gunnarsson, Sæmundur Ari Halldórsson og Páll Theódórs.
- Endursýnt
Pólsk-íslensk heimildarmynd um pólska bæinn Stare Juchy. Um þriðjungur íbúa bæjarins hefur flust búferlum til Íslands í atvinnuleit síðan á níunda áratugnum og enginn þeirra hefur snúið aftur. Í myndinni er fjallað um samband þeirra sem eftir eru í bænum við fjölskyldu, börn og barnabörn sem búsett eru á Íslandi, söknuðinn og heimþrána. Leikstjóri: Pawel Ziemilski.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón: Ari Páll Karlsson, Embla Bachmann og Snæ Humadóttir. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
Jólalegur þáttur í dag🎄
1. Árbæjarskóli sigraði Skrekk 2. Oslóartréð hoggið 3. Jólaþorpið í Hafnarfirði.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Brúin yfir á Krímskaga sprengd
- Dagskrárliðurinn er textaður

Helstu íþróttafréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Veðurfréttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður sjálfvirkt

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Rætt við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og formann Viðreisnar, um brotthvarf þingmanna úr flokknum, stöðu flokksins og ríkisstjórnarinnar í kjölfar þessara tíðinda. Einnig er rætt við Vilhjálm Þorsteinsson, stofnanda máltæknifyrirtækisins Miðeindar, sem hlaut á þessu ári verðlaun Jónasar Hallgrímssonar á Degi íslenskrar tungu.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Bein útsending

Finnsk heimildarmynd um vísindamenn sem rannsaka hafið við Suðurskautslandið. Undir þykkum ísnum eru þörungar og lífverur sem fáir hafa séð. Vísindamennirnir keppast við að skrásetja lífið þar áður en lífríki hafsins breytist til frambúðar sökum hnattrænnar hlýnunar.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Breskt drama frá 2024. Eftir að keyrt er á Marcus Calderwood, umdeildan aðgerðasinna í loftslagsmálum, notar hann síðustu andartökin til að afhjúpa banamann sinn. Málin flækjast þegar í ljós kemur að hann er lögreglumaður. Aðalhlutverk: Adeel Akhtar, Nathalie Armin og Michael Socha. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi

Dönsk leikin heimildarþáttaröð frá 2025 eftir Johannes Fonnesberg. Fjallað er um upphafsár skipaflutningarisans A.P. Møller-Mærsk og baráttu A.P. Møller og fjölskyldu hans við að halda fyrirtækinu á floti í gegnum kreppuna miklu og seinni heimsstyrjöldina. Aðalhlutverk: Jacob Lohmann, Sonja Richter og Morten Holst.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Sannsögulegir breskir dramaþættir frá 2023. Árið 1956 flyst Roberts-fjölskyldan frá Bretlandi til Ástralíu í leit að betra lífi. Erfitt reynist að fóta sig í nýju umhverfi þar sem óvæntar áskoranir leynast á hverju strái. Aðalhlutverk: Warren Brown, Faye Marsay og Hattie Hook. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Leikir í forkeppni EM kvenna í körfubolta.
Leikur Íslands og Aserbaísjan í forkeppni EM kvenna í körfubolta 2029.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Bein útsending

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Brúin yfir á Krímskaga sprengd

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Brúin yfir á Krímskaga sprengd