Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að allt fari í bál og brand á vinnumarkaði? Þær Ásta Fjeldsted forstjóri Festi og Halla Gunnarsdóttir formaður VR glímdu við þessa spurningu í Kastljósi í kvöld. Einnig var rætt við Elizu Reid, fyrrverandi forsetafrú, um samband Kanada og Bandaríkjanna í skugga tollastríðs. Þá litum við í heimsókn til karla í skúrum í Hafnarfirði.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 1996. Spyrill: Davíð Þór Jónsson. Dómari: Helgi Ólafsson. Stigavörður: Sólveig Samúelsdóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Í þessum þætti mætast lið Menntaskólans í Reykjavík og Fjölbrautaskólans við Ármúla. Lið Menntaskólans í Reykjavík skipa Arnór Hauksson, Guðmundur Ragnar Björnsson, Kjartan Bjarni Björgvinsson. Lið Fjölbrautaskólans við Ármúla skipa Valur Freyr Steinarsson, Örn Arnarson og Hjalti Vignisson.
- Endursýnt
Þáttaröð í umsjón Guðríðar Helgadóttur garðyrkjufræðings þar sem hún sýnir áhorfendum réttu handtökin við garðyrkjustörfin. Dagskrárgerð: Björn Emilsson.
Í þessum þætti kíkir Gurrý í matjurtagarðinn þar sem hún setti niður kartöflur og grænmeti fyrr í vor, fær Björgvin Örn Eggertsson skógfræðing til að hjálpa sér við að fella ösp og sýnir hvernig best er að fara að þegar baunum er sáð í pott. Hún heimsækir einnig Jón Þóri Guðmundsson garðyrkjufræðing og Katrínu Eddu Snjólaugsdóttur sem eiga fjölbreytilegan garð á Akranesi. Að lokum sýnir hún hvernig kryddjurtir geta verið fyrirtaks pottaplöntur.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Heimildarþáttaröð í sex þáttum þar sem íslensk ljósmyndun er skoðuð út frá sjónarhorni lista, landslags, samtímans, skrásetningar, fréttaflutnings, fortíðar og framtíðar. Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Katrín Ásmundsdóttir. Stjórn upptöku og framleiðsla: Hrafnhildur Gunnarsdóttir.
Í þættinum er fjallað um mannamyndir og upphafsár ljósmyndunar á Íslandi. Við skoðum feril íslensku frumkvöðlanna, Sigfúsar Eymundssonar, Nicoline Weywadt og Önnu Schiöth. Það kemur á óvart að á Austfjörðum lagði fjöldi kvenna stund á ljósmyndun. Á Akureyri merkti Anna Schiöth ljósmyndir sínar eiginmanni sínum Henrik. Mannamyndir á nýrri öld gefa okkur innsýn inn í hvernig arfleifð mannamynda hefur viðhaldist og þróast.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt

Önnur þáttaröð af Eilífu drama. Hvað gerist þegar besta vinkonan byrjar að hanga með einhverjum öðrum? Saga um vináttu sem rofnar og breytist. Þáttaröðin er á sænsku með íslenskum texta.
Olivia fær nóg af Ellu og tekur afdrífaríka ákvörðun.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Fjórir efnilegir knattspyrnuiðkendur. Einn draumur. Ekkert er sjálfgefið. Sumir berjast fyrir því að falla inn í hópinn, aðrir fyrir því að valda ekki vonbrigðum. Serían er á norsku með íslenskum texta.
Kamal og Leon ákveða að verða atvinnumenn í fótbolta saman.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Þrjár leiknar stuttmyndir, skrifaðar af ungum höfundum á aldrinum 9-12 ára. Handrit að myndunum voru valin í handritasamkeppni Sagna. Leikstjórn og framleiðsla: Anna Karín Lárusdóttir.
Týnda mjólkin fjallar um Alla, sem rekst á sérkennilega eldri konu sem dregur hann í furðulega leit að týndri mjólk. Handrit eftir Karítas Magnúsdóttur.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Vill endurskoða nýtt áhættumat í Grindavík
- Dagskrárliðurinn er textaður

Íþróttafréttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Veðurfréttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður sjálfvirkt

Breskir gamanþættir frá 2025 um hina óviðjafnanlegu Jessop-fjölskyldu. Daglegt líf þeirra er heldur óreiðukennt og yngsti sonurinn Sam festir það allt á filmu. Aðalhlutverk: Katherine Parkinson, Jim Howick og Freya Parks. Handritshöfundur: Tom Basden.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi

Gísli Marteinn tekur á móti góðum gestum á föstudagskvöldum í vetur og fer með þeim yfir helstu atburði vikunnar í stjórnmálum, menningu og mannlífi. Persónur og leikendur koma í spjall og brakandi fersk tónlistaratriði koma landsmönnum í helgarstemninguna. Stjórn útsendingar: Ragnar Eyþórsson.
- Bein útsending
Gamansamir breskir sakamálaþættir frá 2025. Fornleifafræðingurinn Judith Potts, sem sest er í helgan stein, er sannfærð um að hrottalegt morð hafi verið framið í annars friðsæla smábænum Marlow. Þegar lögreglan tekur hana ekki trúanlega gengur hún sjálf í verkið og hefst handa við rannsókn málsins með aðstoð vinkvenna sinna, hundagöngukonunnar Suzie og prestfrúarinnar Becks. Þættirnir eru byggðir á samnefndri skáldsögu eftir Robert Thorogood. Aðalhlutverk: Samantha Bond, Jo Martin og Cara Horgan.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi

Óskarsverðlaunamynd frá 1995 með Mel Gibson í aðalhlutverki. Myndin gerist á 13. öld og segir frá Skotanum William Wallace sem gerist leiðtogi uppreisnarmanna og berst gegn yfirráðum Játvarðs fyrsta Englandskonungs. Leikstjóri: Mel Gibson. Meðal leikenda eru Sophie Marceau, Patrick McGoohan og Angus Macfadyen. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt