Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.
Árni Þór Sigurðsson, formaður Grindavíkurnefndar, segir að fyrirhuguð opnun umferðar um bæinn verði til mikilla bóta og aukinna athafna innan bæjarins. 7 ár eru frá hápunkti MeToo byltingarinnar. Jessica Cantlon, prófessor í taugasálfræði var í fararbroddi hreyfingarinnar í Bandaríkjunum og leggur mat á stöðu Íslands í jafnréttismálum. „Titill á sýningu“ er titill sýningar listamannsins Arnar Alexanders Ámundasonar og fjallar um sandinn sem viðbrögð við list byggja stundum á.
Heimildarmynd frá BBC. Í kjölfar samkomutakmarkana sem Covid-19 hafði í för með sér hættu margir að fara í ræktina og ákváðu að æfa heima í staðinn - en næst sami árangur í stofunni heima og á stöðinni, og hvaða æfingar eru vænlegastar til árangurs?
Þáttaröð í tíu hlutum um íslenskar kvikmyndir allt frá fyrri hluta 20. aldar til samtímans. Í hverjum þætti er ákveðið tímabil tekið fyrir, fjallað um kvikmyndir þess tímabils og sýndir valdir hlutar úr þeim. Rætt er við á annað hundrað kvikmyndagerðarmenn, leikara og kvikmyndasérfræðinga um verkin og margvíslega fleti íslenskrar kvikmyndagerðar. Leikstjóri: Ásgrímur Sverrisson.
Í kvikmyndum frá fyrri hluta 20. aldar og fram undir lok 6. áratugarins má sjá löngun til að takast á við þetta nýja tjáningarform af bjartsýni og áræðni en einnig erfiðar aðstæður og brostna drauma. Rýnt er meðal annars í myndirnar Fjalla-Eyvindur, Saga Borgarættarinnar, Ævintýri Jóns og Gvendar, Hadda Padda, Björgunarafrekið við Látrabjarg, Milli fjalls og fjöru, Síðasti bærinn í dalnum, Ágirnd og Salka Valka.
Dönsk heimildarþáttaröð í þremur hlutum þar sem heilasérfræðingurinn Peter Lund Madsen hittir fólk sem hefur þurft að gjalda þess að hafa ofreynt sig andlega.
Peter Lund Madsen heimsækir Carsten Rasmussem sem greindist með streitu fyrir einu og hálfu ári síðan vegna of mikils álags í daglegu lífi.
Í þáttaröðinni ræðir Eva María Jónsdóttir við konur sem hafa rutt brautina í einhverjum skilningi. Konurnar hafa bæði fengist við störf sem teljast hefðbundin karlastörf, fetað hina hálu braut stjórnmálaframa og komið fram með nýjungar á markaði eða í listum. Þær lýsa á mjög fjölbreyttan hátt glímu sinni við starfið, almenningsálitið og löngun til að stækka eigin hugmyndaheim. Dagskrárgerð: Eiríkur Ingi Böðvarsson.
Gunnhildur Emilsdóttir er ein þeirra sem vildi bjóða upp á grænmetisfæði í Reykjavík. Hún var enn mjög ung þegar hún seldi grænkeramat í óleyfi en með aukinni reynslu fór hún að selja óhefðbundna matreiðslu sína á hefðbundnari hátt. Með elju sinni og tilraunum tók Gunnhildur virkan þátt í vakningunni sem orðið hefur um gildi grænmetisneyslu manna.
Þættir frá 2014 þar sem íslenskar hljómsveitir og tónlistarmenn flytja lög í myndveri RÚV. Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson og upptöku stjórnaði Helgi Jóhannesson.
Kyriama family, Skítamórall, Una Stef og Júníus Meyvant.
Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk í bæjum og sveitum og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Þórdís Claessen, Hafsteinn Vilhelmsson, Elsa María Guðlaugs - Drífudóttir og Amanda Guðrún Bjarnadóttir. Dagskrárgerð: Jóhannes Jónsson, Elvar Örn Egilsson, Hjalti Stefánsson og Björgvin Kolbeinsson.
Í Landanum í kvöld kynnumst við jaðarbyggðunum Húsafelli og Hrafnagilshverfi. Við kíkjum á flugeldahönnuð fyrir vestan sem hefur þróað uppskrift af svalandi sumardrykk. Á Dalvík eru starfsmenn Héraðsskjalasafnsins að byrja upp á nýtt koma þúsundum ljósmynda á stafrænt form eftir að þær glötuðust í tölvuárás og í Kópavogi hittum við vaskan hóp eldri borgara í ræktinni.
Keppni í skapandi þrautum. Skaparar og keppendur hafa 10 mínútur til að klára þraut og taka þátt í Stórhættulegu spurningakeppninni. Þegar tíminn er hálfnaður draga keppendur babb-spjöld. Að sjálfsögðu endar þetta á vænni slímgusu. Dagskrárgerð: Sigyn Blöndal og Sindri Bergmann Þórarinsson.
Í dag er Hrekkjavökuþema í Kveikt á perunni.
Skaparar og keppendur eru: Kári Christian Bjarkason og Hrafnhildur Freyja Einarsdóttir.
Hver fær slímið???
Nýi heimilsfræðikennarinn hún Hrefna, fer með nemendur sína á matreiðsluferðalag um heiminn í allan vetur, þar sem við kynnumst hinum ótrúlegustu réttum frá ýmsum löndum. Matráðsmeistarar eru: Hrefna Hlynsdóttir, Emilía Dröfn Davíðsdótir, Garðar Eyberg Arason, Kría Burgess og Sigurður Hilmar Brynjólfsson.
Að þessu sinni er Hrefna með hrekkjavökuþema í heimilisfræðinni þar sem krakkarnir útbúa þjóðlegan rétt, með hrekkjavökuívafi.
Krakkarnir búa til óhugnalegar ostamakkarónur með blóði og köngulóm.... Nammi!
Auður Bjarnadóttir stjórnar jógaæfingum fyrir börn. Krakkajóga úr Stundinni okkar veturinn 2001-2002. Umsjón og handrit: Auður Bjarnadóttir. Jógakrakkar: Anna Jia, Anna Kolfinna Kuran, Ásta Sólhildur Þorsteinsdóttir, Heiðar Örn Helgason, Herdís Athena Þorsteinsdóttir, Inga Huld Hákonardóttir og Ivan Svanur Corvasce. Sögumaður er Garðar Benedikt Sigurjónsson. Aðstoð við dagskrárgerð: Hlíf Ingibjörnsdóttir. Dagskrárgerð: Eggert Gunnarsson
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.
Forseti Alþingis, Birgir Ármannsson, segir að formenn þingflokka séu nokkuð sammála um það að fjárlög þurfi að afgreiða fyrir kosningar. Hann ræddi um atburðarrás síðustu daga og störfin frammundan á þinginu í Kastljósi.
Aron Can kann kannski að virka spaðalega á fólk en er í raun fjölskyldufaðir sem ann rútínu og neitar að staðna. Við heimsóttum hann á dögunum.
Nýir þættir sem fjalla um hringrásarhagkerfið, þar sem hlutir og hráefni fara í hring og eins manns rusl verður annars fjársjóður. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir og Freyr Eyjólfsson. Framleiðsla: Republik.
Hefðbundinni brúðkaupsveislu fylgir ýmiss konar neysla; t.d. í textíl og skreytingum. Við skorum á brúðhjón að halda veislu í anda hringrásarhagkerfisins – og þau vinda sér í verkið.
Sannsöguleg bresk þáttaröð frá 2023 um leitina að raðmorðingjanum sem kallaður er kviðristan frá Yorkshire. Sögur fórnarlamba hans og vinnubrögð lögreglunnar eru í forgrunni. Yfir þúsund lögregluþjónar tóku þátt í leitinni sem stóð yfir frá 1975 til 1981 og varð rannsóknin til þess að breska lögreglan breytti verklagi sínu til frambúðar. Aðalhlutverk: Jack Deam, Kris Hitchen og Lee Ingleby. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
Leikin frönsk þáttaröð frá 2023 um frönsku ofurfyrirsætuna, leik- og söngkonuna Brigitte Bardot. Fylgst er með Bardot fóta sig í breyttum veruleika við upphaf frægðar sinnar árið 1949 til ársins 1960. Aðalhlutverk: Julie de Nunez, Victor Belmondo og Géraldine Pailhas. Leikstjórn: Christopher Thompson og Danièle Thompson. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Önnur þáttaröð þessara íslensku dramaþátta. Benedikt Ríkharðsson snýr aftur í stjórnmál eftir að hafa tekið sér leyfi frá embætti forsætisráðherra vegna geðhvarfa. Hann kemur auga á ýmis konar ranghugmyndir stjórnkerfisins um samfélagið sem honum reynist erfitt að fá breytt enda brennimerktur vegna fordóma í garð geðsjúkdóma. Aðalhlutverk: Ólafur Darri Ólafsson og Aníta Briem. Leikstjórn: Arnór Pálmi Arnarson og Katrín Björgvinsdóttir.
Andleg heilsa Benedikts versnar eftir að hann hefur sagt af sér og hann fylgir strangri rútínu til að takast á við það. Steinunn styður hann og tekst á sama tíma við pólitískan þrýsting. Grímur reynir að stíga inn í hlutverk Benedikts en mætir andstöðu innan flokksins.