Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson og Viktoría Hermannsdóttir.
Kjósendur á landsbyggðinni hafa sterka skoðun á forsetaframbjóðendum og þeirra stefnumálum. Rætt við nokkra þeirra um baráttuna að baki og kosningarnar næstu helgi. Doktor Mads Gilbert bráða- og svæfingalæknir á Gaza gagnrýnir harðlega skort á viðbragði alþjóðasamfélagsins við hörmungum á svæðinu og lýsir reynslu sinni þaðan. Nýverið opnaði yfirlitssýning sem spannar 60 ára feril Hauks Halldórssonar listamanns. Hann er skúlptúristi, málari, hönnuður og höfundur Útvegsspilsins og gegnum verk hans liggur þráður þjóð- og goðsagna.
Dönsk heimildarmynd frá 2020 í tveimur hlutum sem varpar ljósi á líf nokkurra samkynhneigðra manna sem rifja upp árin upp úr 1980. Lífið virtist brosa við þeim þegar fregnir tóku að berast af dularfullum og ólæknandi sjúkdómi sem virtist aðeins leggjast á homma.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson og Viktoría Hermannsdóttir.
Einokun ríkisins á sölu á áfengi var rofin fyrir þremur árum þegar víninnflytjandinn Sante tók að selja áfengi á netinu. Fleiri fyrirtæki fylgdu fordæmi þess og á dögunum tilkynntu Hagkaup að þau ætli að slást í hópinn. En er þetta löglegt? Á því leikur nokkur vafi og sumir þingmenn kalla eftir að löggjafarvaldið skýri leikreglurnar í eitt skipti fyrir öll. Gestir Kastljóss eru Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar, og Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Breskir sakamálaþættir frá 2023. Rannsóknarlögreglumaðurinn Humphrey Goodman og unnusta hans, Martha, flytja í lítið þorp í Devon á Englandi. Humphrey gengur í lögreglu þorpsins þar sem hann rannsakar glæpi eins og honum einum er lagið. Aðalhlutverk: Kris Marshall, Sally Bretton og Zahra Ahmadi.
Þáttaröðin er hluti af þemanu Sakamálasumar.
Fimmta þáttaröð þessara bresku spennuþátta. Rannsóknarlögreglumaðurinn Sunny Khan og samstarfsfólk hans snúa aftur til starfa eftir mikið áfall þegar líkamsleifar finnast í reykháfi í vesturhluta London. Það reynist teyminu erfitt að leysa málið og nýr samstarfsfélagi þeirra, Jess James, auðveldar þeim ekki lífið. Aðalhlutverk: Sanjeev Bhaskar og Sinéad Keenan. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Þáttaröðin er hluti af þemanu Sakamálasumar.
Sænskir spennuþættir um hermanninn Max Anger sem hefur sagt skilið við sænska herinn og fundið ástina með rússneskri samstarfskonu sinni, Pashie. Eftir að Pashie hverfur sporlaust þarf Max að leggja líf sitt í hættu til að leita hennar. Aðalhlutverk: Adam Lundgren, Johan Rheborg og Malin Crépin. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.