Wolfgang Edelstein

Fyrri þáttur - Kyndilberi lýðræðisins

Farið yfir frumkvöðulsstarf Wolfgangs og framlag hans til íslenskrar skólasögu. Rætt við samverkafólk hans frá þessum árum, þau Sigrúnu Aðalbjarnardóttur og Ingvar Sigurgeirsson, auk þess sem prófessorarnir Berglind Rós Magnúsdóttir og Sigríður Þorgeirsdóttir leggja orð í belg. Jafnframt heyrist brot úr viðtali Ævars Kjartanssonar og Ágústs Þórs Árnasonar við Wolfgang frá árinu 2010.

Umsjón: Arthúr Björgvin Bollason

Birt

24. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Wolfgang Edelstein

Þættir um framlag þýsk-íslenska menntavísindamannsins Wolfgangs Edelsteins til íslenskrar skólasögu. Fjallað er um ævi og störf þýsk-íslenska uppeldis- og menntafrömuðarins, Wolfgangs Edelsteins, sem átti stóran þátt í leggja grunn íslensku skólakerfi okkar daga. Wolfgang flúði með foreldrum sínum til Íslands undan ógnarstjórn nasista á þriðja áratug síðustu aldar. Eftir hann lauk stúdentsprófi frá M.R. fór hann til náms í Frakklandi og síðar í sínu gamla heimalandi, þar sem hann gat sér orð sem menntafrömuður og frumkvöðull í skólamálum. Á sjöunda áratug síðustu aldar var hann fenginn til vera ráðgjafi nýrrar skólarannsóknadeildar sem sett var á laggirnar í menntamálaráðuneytinu. þessu verkefni vann hann í tæpa tvo áratugi, eða þar til deildin var lögð niður á níunda áratugnum.

Þættir

,