Sunnudagur
Viðtöl við tónlistarfólk sem kom fram á sunnudagskvöldinu á Þjóðhátíð 2024 auk þess að ræða við heimafólk og aðra um hátíðina.
Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum er stærsta tónlistarhátíð landsins. En það eru kannski ekki allir sem líta á hana sem slíka. Í þessum þáttum er fjallað um áhrif hátíðarinnar á íslenska tónlist og um þessa vinsælu hátíð sem tónlistarhátíð.
Viðtölin voru tekin upp árið 2024 þegar hátíðin varð 150 ára.
Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.