Takk fyrir lánið

Fordæmi og fyrirennarar

Hugmyndin um fundin hljóð kom upp í akademískri samtímatónlist fljótlega eftir seinna stríð og kallast á við „ready-made“ hugmynd Marcels Duchamps. Verk fyrir hljómsveitir og segulband. Dúkkaði líka upp síðar í hápródúseraðri popptónlist Bítlanna og Beach Boys.

* Musique concréte, ítalski fútúrisminn, Pierre Schaeffer, Karlheinz Stockhausen, John Cage,

Bítlarnir, Beach Boys, ready-made, collage

Birt

1. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Takk fyrir lánið

„sampla“ í tónlist merkir láni hljóðbrot úr eldra lagi. Þessi aðferð hefur tíðkast í rúm fjörutíu ár, sérstaklega í hipphoppi, þar sem bassalínur og hljómar úr eldri diskólögum og fönki voru lengi grunnurinn tónlistinni sem var rappað við, en er útbreidd í nær allri popptónlist samtímans.

Í þessari þáttaröð segir Atli Bollason sögu þessarar aðferðar - tónklippilistarinnar -

frá árdögum hennar í módernískri tónlist fimmta áratugarins, gegnum hipphopp níunda áratugarins

Velt er upp lögfræðilegum álitamálum, en tónklippilistin hefur reynt mjög á

höfundarréttarlög. Tónklippilistin er einnig sett í samhengi við póstmódernískar kenningar um textatengsl og spurt hvort endurvinnsla af þessu tagi leikur innantómum vísunum

sem endurspegli óhæfi til fást við eigin samtíma, eða hvort hún komi á hugmyndafræðilegum tengslum við verkin sem á undan fóru í því skyni varpa nýju, fersku og merkingarbæru ljósi á nútíðina.

Hvernig kallast tónklippilistin á við sambærilegar aðferðir í myndlist og bókmenntum? Hver er munurinn á því nota þekkt hljóðbrot og óþekkt? Hver er framtíð tónklippilistar þegar hægt er framleiða „ímynduð hljóðbrot“ í einni svipan með aðstoð gervigreindar?

Þættir

,