Svik og prettir í bókmenntaheiminum

Þáttur 1 af 4

Í fyrsta þætti er minnst á langa hefð þess segja gamansögur af svikahröppum. Í því samhengi er litið á sögur um þýska hrekkjalóminn Ugluspegil og risana Gargantúa og Pantagrúl sem Francois Rabelais skrifaði um á 16. öld. Síðan er sjónum beint eiginlegu viðfangsefni þáttanna, fölsunum í bókmenntaheiminum og ýmsum einkennum þeirra.

Frumflutt

7. mars 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Svik og prettir í bókmenntaheiminum

Svik og prettir í bókmenntaheiminum

Falsanir og svikahrappar eru ekki einungis vinsælt viðfangsefni bókmennta heldur lita svik og prettir einnig útgáfusögu bókmennta. Alltaf koma við og við upp hneyksli þar sem höfundar verka verða uppvísir því hafa villt á sér heimildir. Slík mál vekja oft upp athyglisverðar spurningar um skáldskap og hlutverk höfunda.

Falsanir spretta upp af ákveðnu sögulegu samhengi og því skiptir forsaga þeirra miklu máli. Falsarar nýta sér þær hefðir sem fyrir eru og spila inn á væntingar viðtakenda. Líkt og satíran varpa falsanir því ljósi á einkenni einstakra bókmenntagreina og tímabila í bókmenntasögunni. Í þáttunum verða raktar frásagnir af nokkrum fölsunum í bókmenntaheiminum, litið á sögulegt samhengi og því velt upp hvort þessar falsanir segi okkur eitthvað um bókmenntir síns tíma. Lesari í þættinum: Vigdís Másdóttir

Umsjón: Auður Aðalsteinsdóttir´

(2012)

Þættir

,