Turku djasshátíðin hefur verið starfrækt síðan 1969 og ávallt lagt áherslu áhugaverða samsetningu dagskrár frá öllum djassheiminum. Oftar en ekki verða til samvinnuverkefni finnskra og alþjóðlegra djasslistamanna á þessum vettvangi eins og tónleikarnir sem við heyrum eru gott dæmi um.
Ameríski tenórsaxófónleikarinn Joe Lovano er fyrir löngu er orðin goðsögn í djasslandinu. Margfaldur verðlaunahafi fyrir sitt spil, tónleikahald og plötuútgáfu. Lovano fæddist árið 1952 og eftir músíkalsk æsku í Cleveland Ohio sótti hann Berklee College of Music í Boston - árið 1971 - nítján ára gamall og í kjölfarið sat hann í saxófóndeildum merkra stórsveita vestanhafs á þeim hverfandi vettvangi. Jafnframt slípaði hann glæstan feril í smásveitum allskonar, tam með Bill Frisell og Paul Motian í annáluðu tríói þeirra. Hann setti líka einhverskonar met með því að gefa út 25 plötur í eigin nafni hjá Blue Note fyrirtækinu á árunum 1991-2016. Eina á ári - auk allra hinna sem hann gerði í samvinnu við aðra - en þó ekki síður í burðarhlutverki. Það heldur áfram að koma spennandi tónlist frá Joe Lovano, hin síðari ár hjá ECM útgáfunni.
Með honum á sviðinu í Turku er argentínski píanistinn Leo Genovese, sem hefur verið eftirsóttur meðspilari í allskonar tónlist undanfarin ár. Meðal annars hefur Genovese átt í farsælu samstarfi við bassastjörnuna Esperönsu Spalding auk þess að vera gildur limur í hljómsveitinni Mars Volta.
Fulltrúar finna í þessum gjörningi eru bassaleikarinn Antti Lötjönen og trommuleikarinn Joonas Riippa. Þeir eru eins og Leo Genovese á miðjum aldri - báðir afsprengi Sibeliusarakademíunnar í Helsinki, sem starfa jöfnum höndum í hefðbundinni djassmúsík sem og í þeirri tilraunakenndari. Þeir eru því vel til þess fallnir að slást í hópinn með Joe Lovano.
Joe Lovano (1952) - All Twelve
Joe Lovano (1952) - Bird's Eye View
John Coltrane (1926-1967) - Love (Meditation suite): One Up One Down / Spiritual
Joe Lovano (1952) - Our Daily Bread
Joe Lovano (1952) - Alexander The Great
Richard Rodgers (1902-1979) - It´s Easy To Remember
John Coltrane (1926-1967) - Song of Praise