• 00:00:00Upphaf
  • 00:00:08Stýrivaxtahækkun
  • 00:19:29Kveðja

Spegillinn

Um stýrivaxtahækkun Seðlabankans

Peningastefnunefnd Seðlabankans tilkynnti í morgun hækkun stýrivaxta úr 7.75 prósentum í átta prósent. Það er ekki hægt segja þetta hafi komið á óvart, miðað við þróun verðbólgu og fleiri þátta, en engu síður voru uppi ákveðnar væntingar um vextirnir héldust óbreyttir.

Verðbólgan er það sem talað er mest um í tilkynningu Peningastefnunefndar bankans í dag. Hún hefur verið yfir 5% það sem af er ári og mældist 5,3% í júlí. Samkvæmt nýbirtri spá bankans er talið hún aukist enn frekar á næstu mánuðum en hjaðni tiltölulega hratt þegar kemur fram á næsta ár.

Verðbólguvæntingar eru þó enn of háar, segir í tilkynningunni, og undirliggjandi verðbólga of mikil.

Rætt er við Róbert Farestveit, aðalhagfræðing Alþýðusambands Íslands og Sigurð Hannesson, hagfræðing og framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins um ákvörðun bankans og rökstuðning hennar.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Mark Eldred

Birt

19. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,