• 00:00:00Margs konar skautun
  • 00:11:35Þegar fólk deyr - duftreitir

Spegillinn - Sumar 2026

Skautun í pólitískri umræðu og bálfarir

Þegar rætt er um samfélagsmál og stjórnmál eru oftar en ekki viðraðar áhyggjur af skautun, skautun orðræðu og samfélagsins sem ali á sundrungu og vegi rótum lýðræðisins, sérstaklega segja menn þetta reyndar um málflutning þeirra sem eru á öndverðri skoðun í málum, en ólíkar skoðanir og ágreiningur um mál þarf ekki vera neikvæður. Það er gagnlegt greina á milli ólíkra tegunda skautunar, segir Eva H. Önnudóttir, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, sem hefur rannsakað skautun í stjórnmálum í íslensku kosningarannsókninni.

Andlátum fjölgar um 100% á næstu 20 árum. Þetta kemur fram í gögnum kirkjugarðaráðs sem hefur yfirumsjón með yfir 350 kirkjugörðum um allt land. Bálförum hefur fjölgað mikið á síðustu árum. Kirkjugarðaráð segir það gríðarlegt hagsmunamál fyrir bæði ríki og sveitarfélög sem flestir velji bálför þessu jarðlífi loknu.

Birt

9. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Spegillinn - Sumar 2026

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,