• 00:00:09Arnar Þór Jónsson
  • 00:08:39Vopnahléssamningur Hamas og Ísraels
  • 00:13:23Stýrivextir óbreyttir Seðlabankastjóri

Spegillinn - Sumar 2026

Forsetaframboð, vopnahlésviðræður og óbreyttir stýrivextir

8. maí 2024

Arnar Þór Jónsson er einn tólf frambjóðenda til embættis forseta Íslands, en forsetakosningar fara fram í júní. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Arnar um hvað það er sem knúði hann til framboðs, sýn hans á forsetaembættið og fleira.

Síðustu daga hafa sendinefndir Hamas og Ísraelsstjórnar fundað í Kaíró, til ræða vopnahléssamkomulag sem Egyptar og Katarar lögðu fram á dögunum og Bandaríkin og Sameinuðu þjóðirnar eiga aðild að. Margar breytingar hafa verið gerðar á samkomulaginu frá því það var fyrst lagt fram og er svo komið fulltrúar Hamas segjast reiðubúnir undirrita það eins og það er. Ísraelsstjórn segir enn vanta nokkuð upp á það uppfylli þeirra kröfur, en segist þó viljug til halda viðræðunum áfram.

Forsvarsmenn verkalýðsfélaga og Samtaka atvinnulífsins eru vonsviknir vegna þess Seðlabankinn heldur stýrivöxtum enn óbreyttum í 9,25%, eins og þeir hafa verið frá því í fyrrasumar. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir nauðsynlegt lækka verðbólgu og stýrivextir séu verkfærið til þess. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Ásgeir.

Birt

8. maí 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Spegillinn - Sumar 2026

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,