Æskuvinirnir Kristinn Rúnarsson og Þorsteinn Guðjónsson lögðu í örlagaríkan leiðangur á einn hæsta tind heims í Himalajafjöllunum árið 1988. Í leiðangrinum gerðust óvæntir atburðir sem aldrei hafa verið upplýstir að fullu. Röð tilviljana gerði það svo að verkum að þetta dularfulla mál kom aftur upp á yfirborðið fyrir nokkrum árum.
Viðmælendur: Rúnar Guðbjartsson, Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir, Kristinn Steinar Kristinsson, Hafdís Guðjónsdóttir, Jón Geirsson, Leifur Örn Svavarsson og Steve Aisthorpe.
Dagskrárgerð: Þóra Tómasdóttir og Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir