Sögur úr raunveruleikanum

Að deyja í einsemd

Þegar fólk deyr í heimahúsi eða bara einhvers staðar annars staðar en á sjúkrahúsi þá er tæknideild lögreglunnar kölluð á vettvang. Tæknideildin kannar hvort andlátið hafi borið með náttúrulegum hætti.

Einstaka sinnum gerist það tæknideildin mætir á vettvang þar sem lík hefur legið lengi. Slíkt gerist sem betur fer sjaldan en árið 2025 fannst lögreglumönnum eins og það væri einhver breyting þar á. Þeir töldu sig koma fleiri einstæðingum en áður.

Rætt er við lögreglumennina Guðmund Þ. Tómasson og Ragnar Jónsson. Við heimsækjum Ingvar Stefánsson og Helenu Björk Magnúsdóttur hjá Kirkjugörðum Reykjavíkur og Emilíu Jónsdóttur félagsráðgjafa hjá Útfararstofu kirkjugarðanna.

Umsjón: Þóra Tómasdóttir

Birt

14. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Sögur úr raunveruleikanum

Í safnvarpinu Sögur úr raunveruleikanum leita dagskrárgerðarmenn uppi sannar sögur úr íslenskum samtíma.

Þættir

,