Andrés Björnsson, Sigurjón Guðjónsson og Hannes Pétursson
Í þættinum er fjallað um upphaf Passíusálmalestrar í útvarpi í viðtali við Andrés Björnsson, séra Sigurjón Guðjónsson gerist leiðsögumaður hlustenda í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd og…
Fjallað er um passíusálma Hallgríms Péturssonar (1614-1674) sem er eitt af höfuðskáldum Íslendinga. Í hugum flestra er hann fyrst og fremst trúarskáld. Meðal íslenskra sálmaskálda hefur hann þá sérstöðu að sálmar hans hafa verið sungnir og lesnir meira en nokkurs annars skálds og merkasta verk hans, Passíusálmana, hefur þjóðin lesið og sungið á hverri föstu um aldir. Enn þann dag í dag eru sálmarnir lesnir í útvarpinu á hverju kvöldi alla virka daga föstunnar.
Umsjón: Hjörtur Pálsson.