PartyZone - Undir diskókúlunni

Party zone - Undir diskókúlunni : 26. júlí

Diskókúlan snýst í Efstaleitinu á föstudagskvöldum í sumar, í þessum áttunda þætti förum við aftur til dansgóðærisins 2007, förum á hinn goðsagnakennda skemmtistað Hollywood í kringum árið 1980, spilum gömul topplög af PZ listum fortíðar ásamt því spila diskóþrennuna og hristum góðan kokteil í lok þáttar.

Frumflutt

26. júlí 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
PartyZone - Undir diskókúlunni

PartyZone - Undir diskókúlunni

Það eiga allir einhverjar góðar og jafnvel trylltar minningar af dansgólfinu þar sem diskókúlan snýst. Við spilum dansmelli áratuganna og kyndum upp í minningum hlustenda. Við rifjum upp skemmtistaði, ákveðin ár eða gullaldartímabil þar sem dansgólfin voru troðfull af gleði og látum.

Þátturinn geymir dagskrárliði eins og Diskóþrennuna, Dansárið er, Skemmtistað fortíðar og íslenska lagið. Gestur þáttarins fær nafnbótina Veislustjórinn og rifjar upp trylling á dansgólfinu og velur nokkur lög. lokum er kokteill kvöldsins hristur fyrir hlustendur, nokkurra laga syrpa með lögum úr ýmsum áttum.

Umsjón: Kristján Helgi Stefánsson og Helgi Már Bjarnason

Þættir

,