Óperan í daglega lífinu

1. þáttur - Rigoletto eftir Giuseppi Verdi

Í þessari þáttaröð verða skoðaðar nokkrar óperur sem tengjast raunverulegum atburðum eða mönnum. Flutt verða atriði úr óperunum og söguþráður þeirra borinn saman við raunveruleikann sem þær byggjast á. Aðalpersónurnar í „Rigoletto“ eru nokkru leyti byggðar á raunverulegum mönnum: Frans I Frakkakonungi, sem uppi var á 16. öld, og hirðfífli hans, Triboulet. Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Pétur Magnússon.

Frumflutt

5. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Óperan í daglega lífinu

Óperan í daglega lífinu

Söguþræðir í óperum þykja stundum reyfaralegir, en samt eru margar óperur byggðar á raunverulegum atburðum eða á lífi fólks sem var til í raun og veru. Hvað er langt á milli óperunnar og raunveruleikans? Í þáttaröðinni „Óperan í daglega lífinu“ verða skoðaðar nokkrar óperur sem tengjast raunverulegum atburðum eða mönnum. Flutt verða atriði úr óperunum og söguþráður hennar borinn saman við raunveruleikann sem þær byggjast á. Umsjón með þáttunum hefur Una Margrét Jónsdóttir.

Þættir

,