Hljóðritun frá tónleikum Hildar Guðnadóttur sem fram fóru í Silfurbergi, Hörpu 6. júní sl.
Flutt er nýjasta verk Hildar, Where to From, af samnefndri plötu hennar sem út kom í október á vegum Deutsche Grammophone. Einnig hljóma lykilverk tónskáldsins sem samin eru á um 20 ára tímabili.
Ásamt Hildi, sem leikur á selló og syngur, taka góðir vinir og samstarfsfólk til margra ára þátt í flutningnum. Liam Byrne leikur á gömbu, Clarie O'Connell og Constance Ricard leika á selló, Sara Saviet leikur á víólu og söngkonur eru þær Peyee Chen og Nina Guo.