Þáttur 9 af 13
Gestir í síðasta þætti Lagaflækja þetta sumarið eru Bryndís Halla Gylfadóttir, sellóleikari, Dagur Gíslason úr hljómsveitinni Misþyrmingu og Einar Bárðarson, lagahöfundur og umboðsmaður.
Gestir úr ólíkum kimum tónlistarlífsins mynda saman æ stærri lagaflækju. Tengingar milli laganna geta verið augljósar eða langsóttar, tónfræðilegar eða persónulegar, einfaldar eða flóknar. Yfir sumarið myndast smám saman fjölbreyttur og óvæntur spilunarlisti.