Konsert

AMY í Noregi 2007

Í aðlhlutverki í Konsert vikunnar er Amy Winehouse, tónleikar sem fóru fram á Hove festival í Noregi 26. júní árið 2007 þegar Amy var á hátindi ferils síns.

Hún var 23 ára, nýgift Blake Fielder-Civil og nýbúin að senda frá sér plötuna Back to Black, sem hafði slegið rækilega í gegn. Lög eins og Rehab, You Know I'm No Good og titillagið Back to Black voru farin að hljóma út um allan heim í útvarpi, á kaffihúsum, verslunum og svo framvegis. Back to Black hafði komið út í október 2006 og var náði fyrsta sæti breska listans.

Þegar hún steig hún á svið á Hove Festival í Noregi þann 26. júní 2007 rigndi eins og hellt væri úr fötu, en Amy lét það ekki slá sig út af laginu, og ekki heldur tónleikagestirnir sem voru c.a. 10.000.

Hovefestivalen á Tromøya í Suður-Noregi var haldin á eyjunni Tromøya, rétt utan við bæinn Arendal í suður-Noregi. Hún var fyrst haldin 26.–30. júní 2007 og stóð í alls átta ár, frá 2007 til 2014. Og Amy Winehouse var ein af stóru stjörnunum á fyrstu hátíðinni árið 2007.

Við heyrum líka Neil Young spila lög af plötunni Harvest moon sem kom út 1992.

Birt
Aðgengilegt til
Lengd

Konsert

Tónleikaupptökur víðsvegar að úr heiminum, frá ýmsum tímum og úr ólíkum tónlistaráttum. Nýjar og gamlar tónleikaupptökur úr safni Rásar 2 í bland við upptökur frá tónlistarhátíðum erlendis sem vinir Rásar 2 í EBU bjóða upp á.

Þættir

,