Heilahristingur

Annar þáttur - Guðrún Sóley

Gestastjórnandi vikunnar er þessu sinni dagskrárgerðarkonan Guðrún Sóley Gestsdóttir. Guðrún stýrir áherslum og þemum í spurningum dagsins. Liðin tvö sem keppa er lið Stórveldisins sem mynda þeir Tómas Steindórsson og Snorri Másson en þeir mæta liði Veru Illugadóttur, dagskrárgerðarkonu og Veigu Grétarsdóttur kajakræðara. Meðal þess sem kemur við sögu í þætti dagsins eru söngleikir, sundlaugar á Íslandi, íslensk hlaðvörp og textar í íslenskum rapplögum.

Frumflutt

27. nóv. 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Heilahristingur

Heilahristingur

Heilahristingur er léttur og skemmtilegur spurningaþáttur þar sem tvö lið svara spurningum um allt milli himins og jarðar. Þetta misserið mun nýr gestaspyrill vikunnar sitja með Jóhanni Alfreð um hverja helgi og ákveða þemu þáttarins.

,