Áttundi þáttur (Eftirmáli)
Útvarpsgoðsögnin Ævar Kjartansson, Anna Marsibil Clausen ritstjóri hlaðvarpa RÚV og Birgir Þór Harðarson, vefstjóri RÚV, setjast á rökstóla og hakka Gervigreindar-Lestina í sig. Tókst…
Kristján og Lóa fengu hugmynd: Að framleiða fyrsta íslenska útvarpsþáttinn sem er alfarið búinn til af gervigreind.
Það reynist flóknara mál en þau óraði fyrir, bæði hvað framkvæmdina varðar og siðferðislega svo nú eru þau í vandræðum.
Getur þátturinn í alvöru orðið að veruleika? Hvað þýðir það að tölva geti talað með röddinni þeirra? Mun tæknin gera þau atvinnulaus?