3. þáttur
Í þessum þriðja og síðasta þætti fá Halla og Ásrún til sín aðrar vinkonur – á öllum aldri – sem segja frá sínum vinkonum og þeirra sambandi. Aristóteles sagði vináttu byggja á sjálfsást.

Ásrún Magnúsdóttir og Halla Þórlaug Óskarsdóttir kynntust árið 1994 þegar þær byrjuðu í Austurbæjarskóla og hafa verið vinkonur síðan þá.
Í þáttaröðinni velta þær fyrir sér hvað „vinkonur“ eiginlega eru – og skoða sérstaklega hvernig vináttan fullorðnast.
Þær grafa upp gömul samskipti sín á milli og afhjúpa ýmislegt sem þær ætluðu aldrei að segja nokkrum lifandi manni.
Fleiri vinkonur koma líka við sögu.