Salka - Ástin og dauðinn, Carmen, íslenskt sjónvarp og barnamenning
Jónína Erna Arnardóttir, skólastjóri Tónlistarskólans á Akranesi, Sigursteinn Sigurðsson, menningarfulltrúi hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi og Sigríður Ásta Olgeirsdóttir, leikkona og söngkona voru gestir Endastöðvarinnar í Borgarnesi. Þau ræddu einleik Unnar Aspar Stefánsdóttur, Sölku -Ástina og dauðann sem er sýnd á Sögulofti Landnámsseturs í Borgarnesi, en líka óperur, barnamenningu og mikilvægi þess að hafa skapandi fyrirmyndir í nærumhverfi sínu.
Birt
20. feb. 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Endastöðin
Rætt um menningarvikuna sem er að líða og það sem er efst á baugi og framundan um helgina.