Bara bækur

Viðtal við Ocean Vuong, Haustsöngvar og Síðasta sumar Klingsors

Bandarísk-víetnamska ljóðskáldið og rithöfundinn Ocean Vuong var sérstakur gestur á viðburði Reykjavík Poetics í Mengi fyrr í mánuðinum. Þar lásu nokkur skáld, meðal annars nýjasti Nóbelshafinn Anne Carson. Síðasta áratuginn hefur Ocean Vuong skipað sér í fremstu röð í bandarískum samtímabókmenntum, bæði sem ljóðskáld og skáldsagnahöfundur. Hann hefur myndað sterk tengsl við Ísland og dvalið hér við skrif sín og átt í góðu listrænu vinasambandi við Björk. Ocean Vuong verður gestur þáttarins.

Sölvi Björn Sigurðsson segir frá ljóðaúrvalinu Haustsöngvar með þýðingum sínum á skáldskap franska skáldsins og symbólistans Pauls Verlaine. Verlaine var eitt af höfuðskáldum sinnar tíðar í Frakklandi. Örfá kvæði eftir Verlaine hafa verið þýdd áður en Sölvi fyllir vel upp í myndina af þessu merkilega skáldi í nýja safninu sem var að koma út hjá Dimmu og hann segir betur frá.

Síðustu dagar Klingsors, nóvella Nóbelsskáldsins Hermanns Hesse frá 1919, var að koma út í íslenskri þýðingu Jóns Bjarna Atlasonar. Sagan er að mörgu leyti viðbragð við breyttri heimsmynd eftir fyrri heimsstyrjöld, expressjónískt verk um tilgang lífsins og listarinnar og er skýrt dæmi um prósasnilld og sköpunargleði Hesse.

Viðmælendur: Ocean Vuong, Sölvi Björn Sigurðsson og Jón Bjarni Atlason.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Bara bækur

Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir. Umsjón: Jóhannes Ólafsson.

Þættir

,