Viðtal við Ocean Vuong, Haustsöngvar og Síðasta sumar Klingsors
Bandarísk-víetnamska ljóðskáldið og rithöfundinn Ocean Vuong var sérstakur gestur á viðburði Reykjavík Poetics í Mengi fyrr í mánuðinum. Þar lásu nokkur skáld, meðal annars nýjasti…
Við verðum með verðlaunagripi á lofti í þættinum, það er ýmislegt í íslenskum bókmenntum sem hefur verið verðlaunað á síðustu viku. Fyrir örfáum dögum voru Fjöruverðlaunin veitt, bókmenntaverðlaun kvenna og kvára og í lok febrúar voru þýðingarverðlaunin afhent. Við förum yfir þær bækur sem voru verðlaunaðar að þessu sinni og heyrum brot úr umfjöllun Rásar 1 um bækurnar.
Viðmælendur: Maó Alheimsdóttir, Brynhildur Þórarinsdóttir, Kristín Guðrún Jónsdóttir, Elísabet Gunnarsdóttir og Áslaug Agnarsdóttir.

Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir. Umsjón: Jóhannes Ólafsson.