Carl Maria von Weber
Á þessu ári eru liðin 200 ár frá andláti þýska tónskáldsins Carls Maria von Weber, sem fæddist árið 1786 og dó 1826. Í tilefni af þessu verður þátturinn “Á tónsviðinu” helgaður tónlist…
Í þættinum verða fluttar tónsmíðar og lesin ljóð og sögubrot sem tengjast júlímánuði. Þar má nefna „Juli“ úr ballettinum „Tólf með póstvagninum“ eftir Knudåge Riisager, „Juli“ úr píanóverkinu „Das Jahr“ (Árið) eftir Fanny Mendelssohn Hensel, „July Tree“ eftir Irmu Jurist, flutt af Ninu Simone, og „Júlívísu“ úr Söngvum mánaðanna“ sem Jón Hlöðver Áskelsson samdi við kvæði eftir Böðvar Guðmundsson. Lesin verða ljóðin „Júlísól“ eftir Gyrði Elíasson, „Júlíljóð“ eftir Sigurð Pálsson, „Júlí“ eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur og „Flóki teiknar í júlí“ eftir Nínu Björk Árnadóttur. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Kristján Guðjónsson.

Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.