Á tónsviðinu

Ralph Vaughan Williams og námið hjá Ravel

Árið 1907 var enski tónsmiðurinn Ralph Vaughan Williams þrjátíu og fimm ára gamall. Hann hafði sent frá sér nokkrar tónsmíðar, en var ekki ánægður, honum fannst sér ganga illa skapa sér sinn persónulega stíl. Hann ákvað fara í frekara tónlistarnám til Frakklands og þannig skipuðust málin hann fór læra hjá frönsku tónskáldi sem var þremur árum yngra en hann sjálfur: Maurice Ravel. Þeir urðu góðir vinir og Vaughan Williams var hæstánægður með kennsluna. Árið 1909, ári eftir námið hjá Ravel, sendi Vaughan Williams frá sér nokkur af sínum bestu verkum, þar á meðal söngvaflokkinn "On Wenlock Edge" og Sjávarsinfóníu. Í þessum þætti verður söngvaflokkurinn fluttur í heild og leikinn verður 2. kafli Sjávarsinfóníunnar. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir, en lesarar eru Björn Þór Sigbjörnsson og Gunnar Hansson.

Birt

26. mars 2026

Aðgengilegt til

24. júní 2026

Á tónsviðinu

Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.

Þættir

,