
Tæplega fimmtíu ára tónlistarferill Bubba Morthens krufinn til mergjar í tali og tónum í tilefni af sjötugsafmælisárinu. Boðið upp á fágætar tónleikaupptökur, viðtöl og umfjallanir um tónlist og texta Bubba sem sumar hverjar hafa ekki heyrst í áraraðir á öldum ljósvakans.
Umsjón: Ásgeir Eyþórsson
Í fimmta þætti eru árin 1987 og 1988 krufin til mergjar og þar koma m.a. við sögu hljómsveitin MX21 og Bubba-plöturnar Dögun, Serbian flower og Bláir draumar. Í þættinum má m.a. heyra valdar klippur úr útvarpsþáttunum Árið er, Bestu plötur ársins 1987, Bestu plötur níunda áratugarins, Bubbi segir sögur, Geymt en ekki gleymt, Rokkland og Segðu mér
Viðmælendur í fimmta þætti eru Bubbi Morthens og Magnús Þór Jónsson (Megas).
Viðtöl: Freyr Eyjólfsson, Ólafur Páll Gunnarsson, Sigurlaug Margrét Jónasdóttir, Skúli Helgason og Snorri Már Skúlason.
Lagalisti:
Bubbi & MX 21 - Skyttan
Bubbi & MX 21 - Skapar fegurðin hamingjuna
Bubbi - Silfraður bogi
Bubbi - Manstu
Bubbi - Aldrei fór ég suður
Bubbi - Menning
Bubbi - Frelsarans slóð
Bubbi - Dögun
Bubbi - Bak við veggi martraðar
Bubbi - Borgin mín
Bubbi - Foxtrot
Bubbi - Klóakkrossfarar
Bubbi - President Song
Bubbi - Serbian Flower
Bubbi - Moon In The Gutter
Bubbi - Voices For Freedom
Bubbi - Whale song
Bubbi & Megas - Eitt til fimmtán glös
Bubbi & Megas - Einum of heví
Bubbi & Megas - Ég bið að heilsa
Megas – Litlir sætir strákar
Megas - Tvær stjörnur
Bubbi - Menn að hnýta snörur