09:03
Fram og til baka
Afmæli Bandaríkjanna og nýr umsjónarmaður

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.

Á fjórða júlí hófst nýr kafli í sögu Fram og til baka þegar þátturinn lengdist um rúma klukkustund og nýr umsjónarmaður Nanna Guðrún Sigurðardóttir settist við hljóðnemann með Felix. Gestur þáttarins, Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir, þekkir vel til í Bandaríkjunum og sagði af kynnum sínum af landi og þjóð. Þá vitnaði hún í hina 250 ára gömlu sjálfstæðisyfirlýsingu.

Svo hringdu umsjónarmenn út um landið í Jóhannes Kristbjörn sem var með ísbíllin á Dalvík og Guðbjörgu Ríkey sem er að fara að gifta sig í Kjósinni. Fulltrúi þáttarins á erlendri grundu, Malín Eyfjörð Ægisdóttir var svo á línunni frá Hróarskeldu

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 3 klst. 15 mín.
,