07:03
Morgunútvarpið
Fjársveltur Reykjalundur,Sóli Hólm er Jóli Hólm,raforkunotkun,einmana unglingar og fréttir vikunnar

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Reykjalundur er ein mikilvægasta endurhæfingarstofnun landsins og órjúfanlegur hlekkur í heilbrigðisþjónustu. Á Reykjalundi njóta árlega á annað þúsund manns, af öllu landinu, endurhæfingar. En það eru blikur á lofti; reksturinn er fjársveltur og Björg Hákonardóttir, sviðsstjóri þjálfunar á Reykjalundi og Vignir Freyr Andersen, starfsmaður fasteigna komu í Morgunútvarpið og ræða við okkur um áskoranir sem fylgja því.

Nú styttist í vertíð hjá Sóla Hólm, einum af allra farsælustu skemmtikröftum þjóðarinnar. Golfsumarið er að renna sitt skeið og í nóvember fer hann af stað með sýninguna Jóli Hólm ásamt Halldóri Smárasyni tónlistarsnillingi og þrátt fyrir ótrúlegt framboð er allt að verða uppselt. En hvernig leggst törnin í okkar mann? Sóli kom til okkar.

Samkeppni um orku til stórnotenda hækkar verðið til almennings og þetta vilja þingmenn Framsóknar girða fyrir. Þau hafa lagt fram þingsályktunartillögu sem felur í sér að umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra leggi fram frumvarp sem tryggi orkuöryggi almennings og stuðli um leið að hagkvæmu og stöðugu verðlagi raforku til þessa hóps. Halla Hrund Logadóttir var á línunni og segir okkur frá þessu.

Einmanaleiki og vanlíðan hrjáir íslensk ungmenni samkvæmt nýjum lýðheilsuvísi sem kynntur var í vikunni. Þar kemur fram að 43% framhaldsskólanema meti andlega heilsu sína slæma. Slæmar fréttir sem koma þó ekki á óvart. Hvernig er verið að bregðast við þessari þróun? Dóra Guðrún Guðmundsdóttir er sviðsstjóri hjá landlækni kom til okkar í spjall.

Við förum yfir fréttir vikunnar með Eddu Sif Pálsdóttur og Tómasi Þór Þórðarsyni.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 50 mín.
Leyft öllum aldurshópum
    ,