Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Félagsráðgjafi sem starfaði hjá Reykjavíkurborg fullyrðir að á þeim stutta tíma sem liðinn er frá því að nýr meirihluti hóf að skera niður hafi stór hluti hennar skjólstæðingahóps þegar upplifað einhvers konar þjónusturof. Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs, var í viðtali um niðurskurðinn í Morgunútvarpinu í gær en Kári Sigurðsson, formaður Sameykis, veltir fyrir sér hvernig pólitísk forysta borgarinnar geti haldið áfram að fullyrða að engin skerðing sé á þjónustu. Kári kom til okkar.
Fyrsta íslenska pitsuhátíðin fer fram í Kolaportinu um helgina. RVK Pizza Festival er þriggja daga veisla þar sem pizzan er í aðalhlutverki. Frítt er inn á viðburðinn og á svæðinu verða 7 pizzastaðir sem ætla að bjóða upp á alls kyns nýjungar sem verða aðeins fáanlegar á hátíðinni. Gestir geta svo valið sína uppáhaldspizzu á meðan á hátíðinni stendur. Róbert Aron Magnússon sagði okkur frá þessari gómsætu hátíð.
Fjölmiðlar hafa undanfarið greint frá því að fólk sem átti í viðskiptum við leigufélagið Sólarmegin, sem leigði út íbúðir á Spáni, hafi tapað milljónum eftir að móðurfélag Sólarmegin fór í greiðslustöðvun. Nýr eigandi tók við nafninu Sólarmegin í september og sig knúinn til að áretta í Facebook-hóp Íslendinga á Spáni að hann væri fórnarlamb í málinu og hefði ekki tekið við fyrri skuldbindingum félagsins. Hann hyggst hins vegar að eigin sögn aðstoða þau sem upplifa sig svikin af fyrri eiganda. Guðfnnur Friðriksson, sem tók við nafninu Sólarmegin, var á línunni frá Spáni.
Við fórum yfir fréttir vikunnar með Sigrúnu Ósk Kristjánsdóttur og Guðmundi Pálssyni, sem stýra nýjum spurningaþætti á RÚV á laugardögum í vetur.
