07:03
Morgunvaktin
11. september breytti heiminum og hefur enn áhrif

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

25 ár eru liðin frá árásunum á Bandaríkin þann 11. september. Við töluðum um þennan dag sem markaði þáttaskil í Bandaríkjunum og hafði ýmiss konar afleiðingar fyrir heiminn allan. Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands og sérfræðingur í bandarískum stjórnmálum, var gestur Morgunvaktarinnar.

Það eru þó ekki bara myrk tímamót á þessum degi. Fyrir fimmtíu árum síðan tók Fjölbrautaskóli Suðurnesja til starfa, og afmælinu verður fagnað í dag, og hefur raunar verið afmælisveisla alla vikuna. Guðlaug M. Pálsdóttir skólameistari sagði okkur frá lífinu og tilverunni í skólanum.

Svo var það sígilda tónlistin. Magnús Lyngdal fjallaði um bandaríska tónskáldið Philip Glass. sagði frá honum og lék tóndæmi. Við heyrðum meðal annars í Berlínarfílharmóníunni og Víkingi Heiðari.

Tónlist:

Björgvin Halldórsson - Gekk ég upp á hólinn.

Simon and Garfunkel - So long Frank Lloyd Wright.

Valdimar - Ryðgaður dans.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,