Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Þeim sem stunda hjólareiðar fjölgar stöðugt, hvort sem það er í þéttbýli eða utan vega. Nú hefur hjólafyrirtækið Lauf Cycles sett á markað fyrsta íslenska rafmagnsfjallahjólið og á það að sameina léttleika, einfaldleika og hámarksafkastagetu. Hjólið ber nafnið eElja og við fengum til okkar Benedikt Skúlason, forstjóra Lauf Cycles, til að segja okkur frá því og ræða um hjólaumhverfið almennt.
Ein ástsælasta kvikmynd Íslandssögunnar lifnar við í sumar þegar stórsöngleikurinn Með allt á hreinu verður settur á svið í Háskólabíói í glænýrri leikgerð. Einvalalið ungra leikara blása nýju lífi í litríka karaktera, sígildar senur og ódauðlegu lög Stuðmanna og Grýlanna, þegar hljómsveitirnar tvær keppast um athygli landsmanna í tónleikaferðalagi um Ísland. Katla Njálsdóttir Ingi Þór Þórhallsson komu og sögðu okkur frá þessu.
Verðbólgan er á uppleið á Íslandi, þvert á plön stjórnvalda og enginn virðist vita hvað er til bragðs að taka. Víða um um sjáum við tímabundnar aðgerðir til að sporna við hækkun á til dæmis eldseytisverði en slíkar aðgerðir hafa ekki verið kynntar hér á landi, þrátt fyrir að verðbólgan sé talsvert hærri en í þeim löndum sem við berum okkur saman við. Við fengum Daða Má Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, til okkar í hressandi verðbólguspjall.
