Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Degi barnabókarinnar verður fagnað í dag og hér á Morgunvaktinni var rætt um barna- og ungmennabækur. Guðrún Baldvinsdóttir frá Miðstöð íslenskra bókmennta og Margrét Tryggvadóttir formaður Rithöfundasambandsins spjölluðu við okkur um mikilvægi þessara bóka.
Þórhildur Ólafsdóttir var með okkur frá Úganda og umræðuefni dagsins var ein helsta útflutningsvara landsins. Það er sykur.
Við fjölluðum líka um ágæti blundsins í þættinum í dag - þess að leggja sig eftir hádegisverð; fá sér kríu. Þessi siður heyrir að mestu sögunni til, hjá vinnandi fólki það er að segja, en ætti hugsanlega að taka upp aftur því smá dott gerir okkur gott. Benedikt Jóhannsson sálfræðingur leiddi okkur í allan sannleika um það.
Tónlist:
Ingibjörg Þorbergs - Aravísur.
Ingibjörg Þorbergs - Guttavísur.
Fleetwood Mac - Albatross.
Ragnheiður Gröndal - Nú sefur jörðin.
