Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Verð á vörum og þjónustu togar verðbólguna upp og neytendur vita ekki sitt rjúkandi ráð. Þá er gott að vita af hópnum Sparnaðartips sem inniheldur rúmlega 47 þúsund meðlimi. Þar skiptist fólk á góðum ráðum þegar kemur að sparnaði sem við megum til með að deila með hlustendum okkar. Morgunútvarpið heyrði í Aldísi Buzgó, sem leiðir þennan þarfa hóp fólks.
Offita er vaxandi vandamál hér á landi og víða um heim. Gögn sýna að vandinn er ekki á undanhaldi og stjórnvöld hafa lagt til aðgerðir til að sporna við offitu. En af hverju er offita enn þá vaxandi vandamál. Birna Þórisdóttir, lektor við matvæla- og næringarfræðideild HÍ, ætlar að svara þessari spurning í ráðstefnunni Vísindi á vordögum, sem fer fram á Hilton Nordica 8. og 9. apríl. Ráðstefnan er samstarfsverkefni Háskóla Íslands og Landspítala en þar hittist vísindafólk, heilbrigðisstarfsfólk, nemendur og almenningur og kynnir sér það sem er efst á baugi í líf- og heilbrigðisvísindum á Íslandi hverju sinni. Boðið er upp á tæplega 200 erindi í 36 málstofum. Það er ókeypis á ráðstefnuna og hún er opin öllum. Birna kom til okkar.
Eftir að hafa tekist á við kulnun og nú krabbamein leitar Róbert H. Hnífsdal í slökun, núvitund og hreyfingu í stað hraða og spennu. Hann vinnur nú að verkefni sem hann kallar „Þú komst ekki svona langt til að komast ekki lengra“ sem er fyrirlestur um lífshlaupið og veikindin sem breyttu viðhorfi hans til lífsins. Róbert vill hjálpa fólki að verða betri manneskjur sem eru meðvitaðari um sjálfar sig og ætlar að koma til okkar í Morgunútvarpið og sagði okkur betur frá þessu áhugaverða verkefni.
Við látum páskana ekki ræna af okkur tæknihorninu enn einu sinni og fáum við sérfræðing okkar í þeim málum, Guðmund Jóhannsson, til okkar á þriðjudegi til að ræða gervigreind og veðurspár.
Valgarður Lyngdal Jónsson formaður bæjarráðs á Akranesi var á línunni en á Skagamenn er ósáttir við hversu seint Vegagerðin tilkynnti um lokun Hvalfjarðagangna vegna viðhalds en útlit er fyrir að göngin verði lokuð á nóttunni í einar sjö vikur.
