07:03
Morgunvaktin
Stríðið í Íran, Berlínarspjall og loftslagsbreytingar

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Enn stríða Bandaríkjamenn og Ísraelar annars vegar og Íranir hins vegar. Hvorugir féllust á vopnahléstillögur sem kynntar voru á laugardag. Trump hótar gríðarlegum loftárásum á Íran verði siglingaleiðin um Hormussund ekki greið olíuflutningaskipum. Ingólfur Bjarni Sigfússon fréttamaður fór yfir atburði páskahelgarinnar og mögulega framvindu.

Í Berlínarspjalli fjallaði Arthúr Björgvin Bollason meðal annars um þúanir og þéranir. Sú var tíð að þéranir tíðkuðust í Þýskalandi, svo lögðust þær nánast af en aftur eru þær nú viðhafðar þegar svo ber undir. Hann sagði okkur líka hvernig Ísland og Íslendingar birtust í vinsælli þýskri sjónvarpsmyndaröð um helgina. Álfar komu við sögu.

Í síðasta hluta þáttarins var rætt um loftslagsbreytingar: Eru þær af mannavöldum: Eða öllu heldur: Ertu sammála eða ósammála því að loftlagsbreytingar af mannavöldum séu staðreynd? Að því var spurt í viðhorfskönnun nýlega. 7 af tíu eru sammála því.

Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands, fór yfir niðurstöðurnar með okkur.

Tónlist:

Eric Clapton - Change the world.

Eric Clapton - Layla.

Count Basie and his Orchestra - Sweety cakes.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,