Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Yfir tólf þúsund íslenskar tónsmíðar eru nú aðgengilegar öllum á netinu. Verkefnið nefnist Nótnaveitan. Finnur Karlsson tónskáld og verkefnastjóri Nótnaveitunnar kom í þáttinn og ræddi um íslenska tónlist, tónskáld og tónlistararfinn.
Björn Malmquist sagði okkur tíðindi frá Evrópu. Kosningar fóru fram í Armeníu og Kósóvó um helgina. Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna var í Frakklandi og hélt þar ræðu sem vakti athygli, og Björn ræddi við tvo nemendur í Garðaskóla sem komu til Brussel til að keppa í fjármálalæsi.
Zelensky Úkraínuforseti skrifaði Pútín Rússlandsforseta opið bréf fyrir helgi, og fór svo til Bretlands að ræða við leiðtoga Bretlands, Þýskalands og Frakklands. Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur ræddi í síðasta hluta þáttarins um stöðu mála í Úkraínu og Rússlandi.
Tónlist:
Ulf Lundell - Jorden till himlen.
Sigríður Thorlacius & Sönghópurinn við Tjörnina, Tómas R. Einarsson - Morgunn.
Antonio Sanchez, Edmar Castaneda, Bela Fleck - Walnut and Western.

07:30

08:30

Veðurstofa Íslands.
Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Sjötti og síðasti þátturinn þar sem lög við ljóð Davíðs Stefánssonar eru leikin. Lögin í þessum þætti eru Þú komst í hlaðið sem Helgi Björnsson syngur, Sálin hans Jóns míns, fyrri hluti sem Ingibjörg Þorbergs syngur, Hrosshár í strengjum sem Friðbjörn G. Jónsson syngur, Vornótt sem Sigrún Hjálmtýsdóttir og Óskar Pétursson syngja, Blómið sem Kristjana Arngrímsdóttir syngur, Til hvers? og Karlinn úti á klöpinni í flutning þjóðlagahópsins Lítið eitt, Gamall sjómaður sem Bjarni Hafþór Helgason syngur, Hvítir fuglar sem Haraldur Reynisson syngur og Þráðurinn hvíti sem Þórhildur Örvarsdóttir syngur. Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: mannlegi@ruv.is
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Dánarfregnir.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Fólk úr ýmsum áttum flytur stuttar hugleiðingar sem tengjast sama umfjöllunarefni.
Umsjón: Guðmundur Óli Scheving

Íslenskt lag eða tónverk.

Útvarpsfréttir.

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Sameinuðu þjóðirnar hafa útnefnt árið 2025 ár skammtafræðinnar.
„Leggðu þig á láðið, hvar lækjarbunur hvína. Farðu svo að þenkja þar um þig og sköpunina," orti skáldið Sigurður Breiðfjörð á fyrri hluta 19. aldar. Við veljum okkur vænan íslenskan lautarbarm, látum okkur falla í dúnmjúkan mosann og hlýðum á streymi vatnsins allt um kring. Hefjum þar að þenkja um það smæsta, og í senn það stærsta; eindir jarðar, minnstu einingar alls og einskis samkvæmt skammtafræðinni. Í þessari þáttaröð horfum við á jörðu og himinsfar, hafsins firna díki, „Gættu að rétt, hver þú ert þar í þessu stóra ríki," eins og Sigurður Breiðfjörð orðaði það. Í þessum þáttum, frá 2023, kynnum við okkur heim skammtafræðinnar, og brjótum heilann um tímann, svarthol, grátt efni, hvítt efni og raunar allra handa efni.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir.
„Leggðu þig á láðið, hvar lækjarbunur hvína. Farðu svo að þenkja þar um þig og sköpunina," orti skáldið Sigurður Breiðfjörð á fyrri hluta 19. aldar. Við veljum okkur vænan íslenskan lautarbarm, látum okkur falla í dúnmjúkan mosann og hlýðum á streymi vatnsins allt um kring. Hefjum þar að þenkja um það smæsta, og í senn það stærsta; eindir jarðar, minnstu einingar alls og einskis samkvæmt skammtafræðinni. Í þessari þáttaröð horfum við á jörðu og himinsfar, hafsins firna díki, „Gættu að rétt, hver þú ert þar í þessu stóra ríki," eins og Sigurður Breiðfjörð orðaði það. Við kynnum okkur heim skammtafræðinnar, í því ljósi brjótum við heilann um tímann, svarthol, grátt efni, hvítt efni og raunar allra handa efni.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir.


Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.

Þáttur um perúska rithöfundinn Mario Vargas Llosa. Llosa var skáldsagnahöfundur, ljóð- og leikskáld og einn áhrifamesti rithöfundur sinnar kynslóðar frá Rómönsku-Ameríku. Hann vakti fyrst verulega athygli á fyrri hluta sjöunda áratugarins og árið 2010 hlaut hann bókmenntaverðlaun Nóbels. Eftir hann liggja tugir skáldsagna, leikrita og greinasafna og verk hans hafa verið þýdd á fjölda tungumála, meðal annars íslensku. Auk ritstarfa var Vargas Llosa alla tíð virkur í stjórnmálum, var framan af mikill vinstri maður en snerist síðan. Árið 1990 bauð hann sig fram til forseta í Perú fyrir bandalag mið- og hægri flokka.
Lesari: Ófeigur Sigurðsson.
Umsjón: Hermann Stefánsson.
Frumflutt í útvarpi 3. janúar 2015.

Útvarpsfréttir.

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.


Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Nokkur vel valin lög

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.
Hljóðritun frá tónleikum flautuleikarans Stefáns Ragnars Höskuldssonar í Norðurljósum, Hörpu 3. júní. Ásamt Stefáni Ragnari koma fram selllóleikarinn Sigurgeir Agnarsson og Liam Kaplan píanóleikari.
Á efnisskrá:
- Sónata fyrir flautu og píanó í D-dúr, op. 94 eftir Sergei Prokofiev.
- The Jet Whistle fyrir flautu og selló eftir Heitor Villa-Lobos.
- Píanótríó nr. 1 í d-moll, op. 49 eftir Felix Mendelsohn.
Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir.
Sameinuðu þjóðirnar hafa útnefnt árið 2025 ár skammtafræðinnar.
„Leggðu þig á láðið, hvar lækjarbunur hvína. Farðu svo að þenkja þar um þig og sköpunina," orti skáldið Sigurður Breiðfjörð á fyrri hluta 19. aldar. Við veljum okkur vænan íslenskan lautarbarm, látum okkur falla í dúnmjúkan mosann og hlýðum á streymi vatnsins allt um kring. Hefjum þar að þenkja um það smæsta, og í senn það stærsta; eindir jarðar, minnstu einingar alls og einskis samkvæmt skammtafræðinni. Í þessari þáttaröð horfum við á jörðu og himinsfar, hafsins firna díki, „Gættu að rétt, hver þú ert þar í þessu stóra ríki," eins og Sigurður Breiðfjörð orðaði það. Í þessum þáttum, frá 2023, kynnum við okkur heim skammtafræðinnar, og brjótum heilann um tímann, svarthol, grátt efni, hvítt efni og raunar allra handa efni.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir.
„Leggðu þig á láðið, hvar lækjarbunur hvína. Farðu svo að þenkja þar um þig og sköpunina," orti skáldið Sigurður Breiðfjörð á fyrri hluta 19. aldar. Við veljum okkur vænan íslenskan lautarbarm, látum okkur falla í dúnmjúkan mosann og hlýðum á streymi vatnsins allt um kring. Hefjum þar að þenkja um það smæsta, og í senn það stærsta; eindir jarðar, minnstu einingar alls og einskis samkvæmt skammtafræðinni. Í þessari þáttaröð horfum við á jörðu og himinsfar, hafsins firna díki, „Gættu að rétt, hver þú ert þar í þessu stóra ríki," eins og Sigurður Breiðfjörð orðaði það. Við kynnum okkur heim skammtafræðinnar, í því ljósi brjótum við heilann um tímann, svarthol, grátt efni, hvítt efni og raunar allra handa efni.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir.

Ævisaga Árna prófasts Þórarinssonar. Þórbergur Þórðarson skráði. Pétur Pétursson les í hljóðritun frá 1988
Ævisaga Árna prófasts Þórarinssonar. Skráð af Þórbergi Þórðarsyni.
Pétur Pétursson les.


frá Veðurstofu Íslands

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: mannlegi@ruv.is
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Útvarpsfréttir.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Menntaþing Vestfjarða fer fram í Edinborgarhúsinu á Ísafirði þann 8. júní. Fjórðungssamband Vestfirðinga setti þingið á fót eftir að leikskólastjórnandi sendi því bréf þess efnis að leikskólakennurum fer ört fækkandi á Vestfjörðum. Útlitið er að eftir 10 ár gæti svo orðið að engir menntaðir leikskólakennarar verði eftir á svæðinu. Hvað er til bragðs að taka? Gylfi Ólafsson er núverandi formaður Fjórðungssambands Vestfirðinga og er að taka við sem bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar í sumar og hann var á línunni.
Sævar Helgi Bragason leit við með það nýjasta úr alheiminu og heimi vísindanna.
Níutíu prósent kvenna sem tóku þátt í rannsókninni „Hulin þekking kvenna í kjölfar barnsburðar“ upplifðu ekki bleikt ský í kjölfar fæðingar barns síns. Önnur niðurstaða er hversu einangrandi og umlukið einmanaleika fæðingarorlofstímabilið getur verið. Heimspekineminn Elín Ásbjarnardóttir Strandberg framkvæmdi þessa áhugaverðu rannsókn og sagði okkur frá henni.
Sérfræðingar Hafnarfjarðarbæjar opna skúffurnar og deila með íbúum og áhugasömum helstu vendingum í málefnum barna í bænum í Hafnarborg á morgun klukkan 17.30. Á meðal þess sem verður rætt er staða barna af erlendum uppruna í Hafnarfirði og hvað stendur þeim til boða í frítíma sínum. Hildur Ýr Jónsdóttir, verkefnastjóri fjölmenningar í Hafnarfirði og Jóna Rán Pétursdóttir forvarnafulltrúi komu til okkar.

07:30

08:30

Létt spjall og lögin við vinnuna.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Útvarpsfréttir.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.



Útvarpsfréttir.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.


Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Ólafur Páll Gunnarsson spilar tónlist að sínum hætti - hitt og þetta og þetta og allt í bland.

Fréttastofa RÚV.

Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.


Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.
Gyða Valtýsdóttir kemur í Plötu vikunnar með Mother Pearl. Platan var samin í þremur löndum, framleidd af maka hennar Úlfi Hanssyni, og felur í sér samstarf meðal ananrs við Kjartan Sveinsson og hljóðfæraleikara frá Belgíu og Bandaríkjunum. Við ræðum hvers vegna hún hætti í Múm 2002, árið sem hún helgaði sér að "læra að vera manneskja," uppgjörið við þunglyndi og skömm sem liggur í djúpum plötunnar og hvernig AI-forrit lagði til nafn hennar fyrir kvikmynd í Hollywoods.

Tónlist að hætti hússins.