Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Kosið verður til þings í Rússlandi um helgina, en þetta eru fyrstu þingkosningarnar frá því að allsherjarinnrás Rússa í Úkraínu hófst. Jón Ólafsson, prófessor við Háskóla Íslands, ræddi um rússnesk stjórnmál.
Arthúr Björgvin Bollason sagði svo frá kosningum í Þýskalandi, en framundan eru tvennar fylkiskosningar og tíu dagar frá þeim síðustu. Merz kanslari á í vök að verjast, en hann er orðinn óvinsælasti kanslari frá lokum síðari heimstyrjaldar samkvæmt könnunum.
Húnvetningar hafa lengi barist fyrir úrbótum á veginum um Vatnsnes og nú er málið komið á framkvæmdaáætlun. Við ræddum um samgöngumálin og sitthvað fleira við oddvitann í Húnaþingi vestra, Sigurð Líndal Þórisson.
Tónlist:
Bítlarnir - The long and winding road.
Hildegard Knef - Berlin, Dein Gesicht hat Sommersprossen.
Ari Bragi Kárason, Davíð Þór Jónsson, Jóel Pálsson, Einar Scheving, Eyþór Gunnarsson - Keilir.

07:30

08:30


Veðurstofa Íslands.

Umsjón: Kristján Kristjánsson.


Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: mannlegi@ruv.is
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Dánarfregnir.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Fólk úr ýmsum áttum flytur stuttar hugleiðingar sem tengjast sama umfjöllunarefni.
Hugleiðingu dagsins um haust flytur Rannveig Tenchi Ernudóttir, kynslóðablandari

Íslenskt lag eða tónverk.

Útvarpsfréttir.

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Sannar sögur úr íslenskum samtíma.
Í þessum þætti færum við okkur inn í nútímann og skoðum við hvað tvær yngstu kynslóðir Vatnsendaerfingja hafa þurft að glíma við. Því það er eins og það verði sífellt erfiðara að bera ábyrgð á þessu verðmæta landi. Kvaðirnar og málaferlin hafa stundum yfirskyggt kostina við arfinn.
Hinn 23 ára gamli Magnús Pétur er nú orðinn þungamiðja í flóknum málaferlum og þarf að stunda búskap í Kópavogi til að missa ekki jörðina frá sér.
Við sögu koma Þórður Bragason vinur Þorsteins Hjaltested, Vilborg Hjaltested systir Þorsteins, Víðir Smári Petersen prófessor í eignarrétti, Guðjón Ármannsson fyrrum lögmaður Kópavogsbæjar, Pálmi Þór Másson bæjarritari Kópavogs og Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri.
Dagskrárgerð: Þóra Tómasdóttir
Hljóðblöndun: Kormákur Marðarson


Íslensk jaðartónlist úr ýmsum áttum frá ýmsum hliðum. Umsjón: Árni Matthíasson

Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Hér segir af því Ódysseifur og félagar hans sigla heimleiðis frá eyju Kirku eftir að hafa heimsótt land hinna dauðu og fyrst liggur leið þeirra framhjá sírenunum, dísum sem seyða til sín sæfarendur með fögrum söng, en síðan er siglt um klettasund milli ófreskjanna Skyllu og Charybdisa, og loks komið að landi á eyju þar sem sólarguði Helíos geymir nautgripi sína og sauðfé. Aldrei hafa félagarnir komist í aðrar eins raunir! Þetta er 12. kafli kviðunnar.

Útvarpsfréttir.

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.


Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Nokkur vel valin lög
Nokkur vel valin lög
Lagalistinn:
Vilhjálmur Vilhjálmsson, Hljómsveit Ingimars Eydal - Vor í Vaglaskógi.
Olga Guðrún Árnadóttir, Maíkórinn - Stormurinn þýtur.
Hist og - Umlíðun.
Bryndís Halla Gylfadóttir - Svíta nr.2, BWV 1008 d-moll (J.S. Bach):
Menuet I og II.
Gíga

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.

Tónleikurinn áskilur sér rétt til að fara í allar áttir, ákveðin tónskáld verða tekin fyrir í sumum þáttum, í öðrum eltir þáttastjórnandi ákveðnar tilfinningar, liti eða kenndir. Aðrir tónlistarmenn en tónskáld verða líka til umfjöllunar, flytjendur teknir tali og spurðir spjörunum úr. Einnig verður farið í ferðalög útfrá nöfnum og verkum tónskálda sem eru á dagskrá hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands eða á öðrum vettvangi þau skoðuð í víðu samhengi og leikin önnur verk eftir sömu tónskáld.
Umsjón: Ingibjörg Eyþórsdóttir
Í þessum þætti verða fluttir tveir ljóðaflokkar fyrir rödd og sinfóníuhljómsveit sem samdir eru með 45 ára millibili, en þó er tónmálið mjög skylt og umfjöllunarefnið sömuleiðis. Sá eldri er Rückert Lieder eftir Gustav Mahler, flokkur fimm laga sem voru samin á árunum 1901-02. Hann er fluttur af Jose van Dam baritónsöngvara ásamt Þjóðarhljómsveitinni í Lille í Frakklandi, undir stjórn Jean-Claude Casadesus. Sá yngri erVier letzte Lieder, sem Richard Strauss samdi árið 1946, hér fluttur af Jessye Norman sópransöngkonu og Gewandhausorchester í Leipzig undir stjórn Kurt Masur.
Umfjöllunarefni ljóðanna við öll þessi lög er hárómantískt, og ekki að heyra að á milli þeirra hafi liðið einhver örlagaríkasti tími í Evrópu á síðari tímum.

Tónlistarhljóðrit frá ýmsum tímum úr safni útvarpsins
Sannar sögur úr íslenskum samtíma.
Í þessum þætti færum við okkur inn í nútímann og skoðum við hvað tvær yngstu kynslóðir Vatnsendaerfingja hafa þurft að glíma við. Því það er eins og það verði sífellt erfiðara að bera ábyrgð á þessu verðmæta landi. Kvaðirnar og málaferlin hafa stundum yfirskyggt kostina við arfinn.
Hinn 23 ára gamli Magnús Pétur er nú orðinn þungamiðja í flóknum málaferlum og þarf að stunda búskap í Kópavogi til að missa ekki jörðina frá sér.
Við sögu koma Þórður Bragason vinur Þorsteins Hjaltested, Vilborg Hjaltested systir Þorsteins, Víðir Smári Petersen prófessor í eignarrétti, Guðjón Ármannsson fyrrum lögmaður Kópavogsbæjar, Pálmi Þór Másson bæjarritari Kópavogs og Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri.
Dagskrárgerð: Þóra Tómasdóttir
Hljóðblöndun: Kormákur Marðarson


Að loknum 18. lestri Völsunga sögu ræðir Ragnheiður Gyða Jónsdóttir við Torfa Túliníus um 13. öldina, sem talin er ritunartími Völsunga sögu (22,05 mín.)
Frumflutt 19.04.1993


frá Veðurstofu Íslands

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: mannlegi@ruv.is
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Útvarpsfréttir.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Í síðustu viku var greint frá því að fyrirtækið Kaldvík hefði fengið rekstrarleyfi fyrir tíu þúsund tonna laxeldi í Seyðisfirði. Áform um eldi á svæðinu hafa mætt talsverðri andstöðu Seyðisfirðinga. Benedikta Guðrún Svavarsdóttir, formaður Vár sem berst gegn laxeldinu, segir að formlegt samtal við Seyðfirðinga hafi ekki átt sér stað þrátt fyrir andstöðu þeirra við komu laxeldis. Kaldvík segist hafa átt í góðum samskiptum við sveitarfélagið. Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra er á leiðinni austur í vikunni og var á línunni.
Svakalega lestrarkeppnin fer af stað í dag en 100 skólar um allt land eru skráðir og keppa um það hver les mest næstu þrjár vikur. Verðugt verkefni þegar lesskilningur barna virðist vera á undanhaldi - eða hvað? Rithöfundarnir Eva Rún Þorgeirsdóttir og Blær Guðmundsdóttir komu til okkar en þær hlutu á dögunum Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur í ár fyrir bókina Bestu vinir.
Bragi Valdimar Skúlason birti á dögunum mynd af gervigreindarteiknuðum límmiða sem börn frá gefins frá lögreglunni á Facebook og hafði ýmislegt við hann að athuga. Þetta á sér stað um svipað leyti og gervigreind tekur yfir ýmis skapandi störf og Bragi telur smekkleysið hafa sigrað og að metnaðarleysið sé komið til að vera. Hann á þó erfitt með að trúa því að við sættum okkur við það. Bragi Valdimar kom til okkar í spjall.
Íþróttakonur víða um heim gagnrýna nýja auglýsingaherferð þar sem leikkonan Sydney Sweeney situr fáklædd fyrir og setur sig í stellingar ýmissa íþróttagreina. Veðmálafyrirtæki stendur á bak við auglýsinguna sem er gagnrýnd fyrir að kynlífsvæða íþróttir kvenna. Heilsusálfræðingurinn og samfélagsmiðlastjarnan Ragnhildur Þórðardóttir, Ragga Nagli, ræddi við okkur um þetta.

07:30

08:30

Létt spjall og lögin við vinnuna.



Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Útvarpsfréttir.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.



Útvarpsfréttir.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.


Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Í Undiröldinni heyrir þú nýja íslenska tónlist úr ýmsum áttum sem gæti mögulega slegið í gegn á næstu vikum. Þetta gæti verið popp, raftónlist, rapp, kántrí, þungarokk eða djass - en eina sem er 100% hægt að lofa - er að lögin sem eru spiluð eru ný og íslensk .
Umsjón: Þorsteinn Hreggviðsson.

Fréttastofa RÚV.

Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.
Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson
Rokkland mælir með: september 2026
Belgíska hljómsveitin Deus kemur til landsins og spilar í Austurbæ - rifjum upp viðtal við Tom Barman úr DEUS frá 2006 þegar sveitin kom síðast til Íslands.
Oasis - tölum um myndina Don´t look back in anger sem er verið að sýna í bíó um allan heim þessa dagana - líka á Íslandi.