
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

07:30

08:30

Ár er liðið frá innrás Rússa í Úkraínu. Hvernig tölum við um Rússland og hinn slavneska heim í kjölfar þessara voveiflegu atburða? Eigum við að slaufa rússneskri menningu eða þvert á móti faðma hana að okkur fastar en nokkru sinni fyrr í von um að ná áttum í heimi sem stendur á krossgötum? Kaldastríðsbarn og lúsugur Rússlandsfari kafar ofan í þessar hábölvuðu spurningar með hjálp sérfróðra.
Umsjón: Gunnar Þorri Pétursson.
Rús - þættir um þjóð og menningu á krossgötum
Í tíunda og lokaþætti RÚS tekur umsjónarmaður, Gunnar Þorri Pétursson, saman nokkra þræði í umfjöllun sinni sem stað hefur yfir um þjóð á krossgötum.
Lesari í þættinum, ásamt umsjónarmanni er Ása Helga Hjörleifsdóttir.
Guðni Tómasson veitti aðstoð við dagskrárgerð og samsetningu.
Ár er liðið frá innrás Rússa í Úkraínu. Hvernig tölum við um Rússland og hinn slavneska heim í kjölfar þessara voveiflegu atburða? Eigum við að slaufa rússneskri menningu eða þvert á móti faðma hana að okkur fastar en nokkru sinni fyrr í von um að ná áttum í heimi sem stendur á krossgötum? Kaldastríðsbarn og lúsugur Rússlandsfari kafar ofan í þessar hábölvuðu spurningar með hjálp sérfróðra.
Umsjón: Gunnar Þorri Pétursson.

Morgunleikfimi með Halldóru Björnsdóttur.


Veðurstofa Íslands.

Umsjón: Svanhildur Jakobsdóttir.


Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: mannlegi@ruv.is
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Dánarfregnir.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Fólk úr ýmsum áttum flytur stuttar hugleiðingar sem tengjast sama umfjöllunarefni.
Lokapistilinn um vind flytur Auður Hallgrímsdóttir, flugfreyja, móðir og margt fleira.

Íslenskt lag eða tónverk.

Útvarpsfréttir.

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Bryndís Björgvinsdóttir setur upp garðhanskana.
Í þáttunum er fræjum sáð og fróðleik um hvers kyns gróður mokað upp. Fjallað er um garða, skóga, umhirðu og græn svæði – og ekki síst gæðastundirnar í náttúrunni.
Í þættinum er fjallað um þá tegund blóma sem hefur heillað okkur mannfólkið hvað mest og lengst – rósir. Rætt er um táknfræðilegt hlutverk þeirra en þó allra mest um rósarækt á Íslandi og þau yrki rósa sem þykja hvað harðgerðust. Slíkar rósir má sjá á umferðartorgum víða og nálægt sjávarsíðunni enda eru margar þeirra vind- og saltþolnar. Minnst er á brautryðjendastarf Jóhanns Pálssonar fyrrverandi garðyrkjustjóra. Einnig er fjallað um rósir sem notaðar eru í skreytingar og muninn á þeim og garðrósum. Rætt er við rósaræktendur og meðlimi í Rósaklúbbnum.
Viðmælendur: Hjörtur Þorbjörnsson og Steinar Björgvinsson.


Veraldarvefur tónlistarinnar. Lagasyrpur héðan og þaðan úr víðri veröld.


Við heyrum aftur sögurnar sem sagðar voru í þáttaröðinni Sögum af landi, sem var á dagskrá Rásar 1 frá árinu 2015-2023. Þar var flakkað um landið, rætt við fólk sem hafði sögur að segja, kynntir voru áhugaverðir staðir og fréttamál líðandi stundar skoðuð - oft með nýjum augum. Efni í þættina unnu frétta- og dagskrárgerðarfólk RÚV um allt land.
Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Þáttur frá 29. október 2017: Litið inn á vinnustofur hjá þremur listamönnum, skrafað um innblástur, efnivið og efnistök þeirra. Myndlistin hefur trúlegast fylgt manninum frá fyrstu hellisbúunum og skyldi enginn draga mikilvægi hennar í efa. Innslög í þáttinn unnu Birna Pétursdóttir, Dagur Gunnarsson og Rúnar Snær Reynisson.
Umsjón með endurliti: Gígja Hólmgeirsdóttir.

Útvarpsfréttir.

Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.


Púlsinn tekinn á menningarlífi landsins í lok viku. Rætt um menningu í vikunni sem er að líða, það sem er efst á baugi þessa stundina og framundan um helgina.
Umsjón: Júlía Margrét Einarsdóttir

Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Brot úr Morgunvaktinni.

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.
Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Tónlistin að þessu sinni kemur úr nokkrum áttum. Fyrst eru þrjú lög eftir tónlistarfólk sem var í Vísnavinum á sínum tíma. Erna Hrönn Ólafsdóttir syngur lag og texta Bergþóru Árnadóttur sem heitir Einu sinni þú, Ingi Gunnar Jóhannsson syngur tvö frumsamin lög, annarsvegar Ferðalag, textinn eftir Aðalstein Ásberg Sigurðsson og hinsvegar Tilfinning, texti eftir Sigmund Erni Rúnarsson. Sæmundur Haraldsson flytur ljóð eftir Dag Sigurðarson við undirleik norrænna tónlistarmanna sem leika lag eftir hann og Sigríður Thorlacius flytur tvö ljóð eftir Kristínu Svövu Tómasdóttur en lögin eru eftir föður hennar Tómas R. Einarsson. Að lokum eru þrjú lög eftir Ísólf Gylfa Pálmason. Tvö þeirra eru eftir ljóð eftir föður hans Pálma Eyjólfsson og heita Morgunljóð Margrétar og Kveðjustund og þriðja lagið er Talað við barn sem Ísólfur samdi við ljóð Ingibjargar Björgvinsdóttur. Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Samantekt hvers þema (fimm þátta) úr örþáttaröðinni.
Upprifjun úr Uppástandi frá því í febrúar 2023. Jörgen Leonhard Pind, Soffía Bæringsdóttir, Henning Emil Magnússon, Þorbjörg Dahne Hall og Hlynur Steinsson fjalla um hlustun.

Gestur úr Mannlega þættinum talar um bækur.
Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari. Við fengum að heyra hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Laufey talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
Ítölsku skáldkonurnar Dacia Maraini og Elsa Morante
Halldór Laxness, meira og minna allt hans höfundarverk
Fjallkirkjan e. Gunnar Gunnarsson
Astrid Lindgren og fíllinn Babar
Við heyrðum svo í lokin ljóðið Mynd eftir Þorstein frá Harmi af diskinum Ljóðið ratar til sinna í upplestri skáldsins.
Bryndís Björgvinsdóttir setur upp garðhanskana.
Í þáttunum er fræjum sáð og fróðleik um hvers kyns gróður mokað upp. Fjallað er um garða, skóga, umhirðu og græn svæði – og ekki síst gæðastundirnar í náttúrunni.
Í þættinum er fjallað um þá tegund blóma sem hefur heillað okkur mannfólkið hvað mest og lengst – rósir. Rætt er um táknfræðilegt hlutverk þeirra en þó allra mest um rósarækt á Íslandi og þau yrki rósa sem þykja hvað harðgerðust. Slíkar rósir má sjá á umferðartorgum víða og nálægt sjávarsíðunni enda eru margar þeirra vind- og saltþolnar. Minnst er á brautryðjendastarf Jóhanns Pálssonar fyrrverandi garðyrkjustjóra. Einnig er fjallað um rósir sem notaðar eru í skreytingar og muninn á þeim og garðrósum. Rætt er við rósaræktendur og meðlimi í Rósaklúbbnum.
Viðmælendur: Hjörtur Þorbjörnsson og Steinar Björgvinsson.


Að loknum 16. lestri Völsunga spgu les Ragnheiður Gyða Jónsdóttir úr bók Jóns Helgasonar Tvær kviður fornar þar sem hann leitar samtímaheimilda um Atla Húnakonung (15,43 mín.)
Frumflutt 15.04.1993


frá Veðurstofu Íslands

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: mannlegi@ruv.is
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Púlsinn tekinn á menningarlífi landsins í lok viku. Rætt um menningu í vikunni sem er að líða, það sem er efst á baugi þessa stundina og framundan um helgina.
Umsjón: Júlía Margrét Einarsdóttir

Útvarpsfréttir.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

07:30

08:30


Létt spjall og lögin við vinnuna.



Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Útvarpsfréttir.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.



Útvarpsfréttir.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.


Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Léttir tónar óma úr eldhúsinu.

Fréttastofa RÚV.

Kletturinn sér um að koma þér í gírinn á föstudagskvöldum. Rokk er rauði þráðurinn í gegnum þáttinn í eins teygjanlegum skilningi og mögulegt er. Rokk, indie rokk, indie popp, dans-pönk, nýbylgja, alt-rokk, síðpönk og country verður á boðstólum í hrærigraut af stemmingu og straumum.
Umsjón: Karl Sölvi Sigurðsson.


Samkvæmis og gleðiþáttur á föstudagskvöldum þar sem Doddi litli leikur hressandi samkvæmispopp síðustu fimm áratuga og dansar með hlustendum inn í helgina.