16:05
Fræðafólk
Fræðafólk 4 - Ragnheiður Kristjánsdóttir og þurfamenn

Umsjón: Illugi Jökulsson

Umsjón: Illugi Jökulsson

Á 3. áratug 20. aldar hófust umræður um hvort réttlætanlegt væri að þurfafólk, það er að segja fólk sem þáði sveitarstyrk af ýmsum ástæðum, væri þar með svipt ýmsum borgaralegum réttindum eins og verið hafði. Umræðurnar vörpuðu ljósi á viðhorf til þurfafólks bæði að fornu og nýju. Ragnheiður Kristjánsdóttir hefur skrifað um þetta bók í nýrri ritröð Sögufélags, Þurfamenn fá mannréttindi, og ræðir í þessum þætti við Illuga Jökulsson um bókina og ýmsa þætti málsins.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 54 mín.
,