
Við heyrum aftur sögurnar sem sagðar voru í þáttaröðinni Sögum af landi, sem var á dagskrá Rásar 1 frá árinu 2015-2023. Þar var flakkað um landið, rætt við fólk sem hafði sögur að segja, kynntir voru áhugaverðir staðir og fréttamál líðandi stundar skoðuð - oft með nýjum augum. Efni í þættina unnu frétta- og dagskrárgerðarfólk RÚV um allt land.
Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.
Vínill vikunnar að þessu sinni er Bísar í banastuði með hljómsveitinni Kamarorghestar sem kom út 1981.
Á áttunda og níunda áratug síðustu aldar varð Kaupmannahöfn að einskonar listamiðstöð fyrir tilraunaglaða Íslendinga, enda var þar fjölmennt íslenskt samfélag. Stór hluti Íslendinganna dvaldi þar við nám í nokkur ár og sneri svo heim, en allmargir ílentust þar fyrir ýmsar sakir, þar á meðal fjölmargir listamenn sem kunnu betur við sig í fjölmenni stórborgarinnar en í smábænum Reykjavík sem þá var. Þar starfaði um tíma hljómsveitin Kamartorghestar sem átti rætur í íslenskri kommúnu.
Skammt fyrir utan Hveragerði, nánar tiltekið í Gljúfurárholti í Ölfusi, stóð hús sem vinnuflokkar sem reistu Búrfellslínu snemma á áttunda áratugnum höfðu á leigu og fékk fljótlega nafnið Skúnkurinn. Í kjölfar þeirra tóku aðrir við leigunni og þar varð til listamannakommúna með tilraunahljómsveit sem notaði heimatilbúin hljóðfæri, aðallega slagvek, og söng mikið að sögn Benónýs Ægissonar, eins stofnanda hennar og helsta textasmið. Upprunalega hét hljómsveitin Hin kvalráða meginuppistaða Kamarorghesta Jónasar Vest og starfaði frá 1972 til 1976.
Eins og Benóný rakti söguna í viðtali við Stúdentablaðið 1980 hélt hann til Kaupmannahafnar 1976 og starfaði þar með hljómsveitinni Krauku, í leikhópi og með hljómsveitinni Bláklukkum. Meðal annars var settur upp kabarettinn Ósjálfráðir fjörkippir sem sýndur var víða í Danmörku og Svíþjóð og í framhaldinu voru Kamarorghestarnir endurreistir af Benóný með nýjum mannskap, en með honum í nýrri útgáfu sveitarinnar voru Kristján Pétur Sigurðsson, Kristján Þór Sigurðsson, Björgúlfur Egilsson og Lísa Pálsdóttir.
Hljómsveitin kom fyrst fram undir nafninu Kamarorghestar Jónasar Vest og setti meðal annars upp óperettuna Skeifu Ingibjargar í Félagsstofnun stúdenta í Reykjavík 1978, en kveikjan að því verki var mynd af Ingibjörgu Einarsdóttur sem beið árum saman í festum eftir Jóni Sigurðssyni og reyndi ekki að leyna gremjuskeifunni, eins og segir í söngtexta í óperettunni, enda var hann orðinn hinsegin.
Í viðtali við Kamarorghesta Jónasar Vest í Þjóðviljanum haustið 1979 segjast sveitarmenn spila það sem þeir kalla frírokk: „Við höfum skapað nýja músíkstefnu, sem heitir frírokk. Það þýðir að hver og einn spilar nokkurn veginn það sem hann filar, utan um vissa beinagrind að lagi.“
Benóný flutti aftur til Íslands 1980 og stofnaði þar hljómsveitina Orghestarnir, en Kamarorghestar héldu sínu striki í Kaupmannahöfn og voru iðnir við spilamennsku í Danmörku næstu árin. 1981 var tekin ákvörðun um hljóðrita plötu og til að gefa út heima á Íslandi og Kamaororghestar heimsóttu Ísland í fyrsta sinn sumarið 1981. Fyrstu tónleikarnir voru í Iðnó 23. júlí og á næstu vikum lék sveitin víða. Tónleikum hennar var almennt vel tekið og plötunni var líka vel tekið þegar hún loks kom út í október.
Í kynningu á plötunni frá þessum tíma kemur fram að hún fjalli í stuttu máli um það hvernig dagur í Kamarorgbæli gengur fyrir sig. Hvað tónlistina varðar þá segir í frétt í Dagblaðinu í október 1982 að sérfræðingum beri ekki saman um hvort músíkin sé rokk, pönk, nýbylgja, blús, sinfónía eða skallapopp, þó að Kamarorghestar sjálfir segi hana skallapönk propaganda.
Bísar í banastuði þótti nokkur tíðindi í íslenskri útgáfu, enda var tónlistin mjög á skjön við flest það sem gefið var út um þessar mundir á Íslandi, því risin var pönkbylgja. Henni var líka almennt vel tekið og í umsögn Andreu Jónsdóttur um plötuna í Þjóðviljanum sagði hún að lög þeirra Kamarorghesta féllu mjög vel að anda hvers texta og á plötunni væri að finna rokk, nýbylgju og ballöður. Í dómnum kemur líka fram að hljómsveitin syngi tæpitungulausar en forráðamenn Útvarps þoli, en í laginu Samviskubit syngur Lísa Pálsdóttir um að fá sér á snípinn, sem þótti óviðurkvæmilegt og varð til þess að bannað var að spila lagið í útvarpinu.
Á plötunni skipa Karmaorghesta Björgúlfur Egilsson, sem leikur á bassa og syngur, Gísli Víkingsson leikur á hljómborð, Guðmundur Einarsson annast hljóð og blöndun, Kristján Pétur Sigurðsson syngur, Kristján Þór Sigurðsson leikur á gítar, Lísa Pálsdóttir syngur, Ólafur Sigurðsson leikur á trommur, Þorbjörn Erlingsson á flautu og gítar og syngur líka og blandar og Björg Rafnsdóttir raddar.
Eggert Sigurðsson er skráður velgjörðarmaður og heillakall og Sören Hansen er skráður fyrir upptökum og blöndun.
Platan var tekin upp í Hookfarm-hljóðverinu í Kaupmannahöfn í apríl til maí 1981. Öll lög og textar eru eftir Kamarorghestana nema textinn við Nebbann er eftir Magneu J. Matthíasdóttur.
Umslag plötunnar þótti einkar vel heppnað en Haraldur Örn Jónsson og Pía Rakel Sverrisdóttir tóku ljósmyndir og önnuðust útlit umbúða.

frá Veðurstofu Íslands.
Í um 400 ár hafa ábúendur á Loftsstöðum notið sérstakrar verndar Galdra-Ögmundar.
Þau varðveita úr honum annan lærlegginn í lítilli glerkistu undir bókaskáp, og svo lengi sem beinið er á jörðinni ver það þau Tyrkjaránum, sjóskaða, náttúruhamförum og hvers konar mannraunum. En ein er sú vá sem enginn gat séð fyrir…
Þjóðsögur, flókin fjölskyldusambönd og erfðir mætast í þremur þáttum þar sem uppljóstrað er um rúmlega 70 ára gamalt leyndarmál.
Umsjón: Anna Marsibil Clausen
Allt leitar yfirborðsins. Lærleggirnir una sér ekki í moldu og sögur úr æsku systkinanna af Lækjarbakka brjótast fram.

Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
Gestir þáttarins voru þau Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, og Stefán Vagn Stefánsson, formaður þingflokks Framsóknarflokksins og nefndarmaður í fjárlaganefnd Alþingis. Til umræðu var meðal annars fjármálaáætlun sem kynnt var í vikunni, húsnæðismál, kjaramál og verðbólga.
Umsjón: Alma Ómarsdóttir
Tæknimaður: Þráinn Steinsson

Tónlist héðan og þaðan

Útvarpsfréttir.

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Samkvæmt okkar útreikningum voru samtals 4.308.068 Norðurlandabúar á kjörskrá í tvennum kosningum sem fóru fram í vikunni. Það var kosið í Danmörku á þriðjudag og í Færeyjum á fimmtudag. Við ætlum að kafa aðeins í úrslitin í báðum löndum, skoða kosningabaráttuna og fleira.
Svo segjum við ykkur allt um einkalán sem valda sérfróðum á fjármálamarkaði talsverðum áhyggjum. Hætturnar í heimshagkerfinu eru æði margar um þessar mundir. Stríðið í Mið-Austurlöndum hefur keyrt verð á olíu og gasi í hæstu hæðir og hlutabréfamarkaðir um allan heim nötra. En þessir atburðir hafa dregið athyglina frá annarri undirliggjandi ógn sem ekki hefur farið jafn hátt en gæti, ef allt fer á versta veg, komið af stað heimskreppu eins og þeirri sem skók fjármálamarkaði árið 2008. Magnús Geir Eyjólfsson segir frá.

Í Kúrs gerast nemendur við Háskóla Íslands dagskrárgerðarmenn; segja sögur, kafa í fræðin og spyrja spurninga. Leiðbeinendur: Þorgerður E. Sigurðardóttir og Anna Marsibil Clausen.
Þegar íslensk erfðagreining rannsakaði móðurarf Íslendinga, þá kom á óvart að 63% kvenna sem komu hingað í landnámi voru af keltnesku bergi brotin. Í þessum þætti verður fjallað um líkindi Íslensku menningarinnar við þá keltnesku, og ástæðurnar af hverju við Íslendingar höfum ekki viðurkennt móðurarfinn. Írland er þá haft sérstaklega í brennidepli.
Umsjón: Jakob Fjólar Gunnsteinsson

Útvarpsfréttir.

Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Tónlist frá ýmsum tímum úr ólíkum héruðum Djasslandsins. Íslenskt og erlent í bland.
Pétur Grétarsson ræðir við Björn Thoroddsen gítarleikara um nýja plötu hans - Friday Night@Hringbraut, Hafnarfjörðinn, gítarana, áhrifavaldana og gömul og ný verkefni í tónlist.
Tónlistin í þættinum:
Friday Night @ Hringbraut - Björn Thoroddsen
Fix you - Chris Martin - Björn Thoroddsen
Kysstu mig, hin mjúka mær - ísl Þjóðlag - Guitar Islancio
Blue Lagoon - Björn Thoroddsen/úts R Gillis - Stórsveit Reykjavíkur
Fuglinn - Björn Thoroddsen og kvintett
Máfaskelfir - Björn og Guðmundarnir Ingólfs- og Steingrímssynir ásamt Pálma Gunnarssyni
Sweet memories - Björn Thoroddsen og Gammar
Someone to watch over me - Jóhann Helgason og Gammar
The Hammer - Björn Thoroddsen með Jóni Rafnssyni og Sigfúsi Óttarssyni

Fréttir

frá Veðurstofu Íslands
Sveiflutónlist og söngdansar að hætti hússins.
Benny Green og hljómsveit flytja lögin Sexy Mexy, My Girl Bill, Central Park South, Apricot og Thursday's Lullaby. Kenny Barron og hljómsveit leika lögin Here's That Rainy Day, Blue Monk, In The Meantime, Two Areas og Peruvan Blue. Kvartett Dave Douglas og Frank Woeste flytur lögin Emergent, Spork, Transparent, Mains Libres og Montparnasse.
Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir
Komma, strik og skammstafanir voru umræðuefni Marðar Árnasonar í Daglegu máli árið 1984. Þráðurinn er nú tekinn upp að nýju enda hefur reglum um geinarmerki síðan verið breytt. Þó hafa ekki orðið á þeim gagngerar breytingar og Daglegt mál frá 1984 á enn jafn mikið erindi við hlustendur.

Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
Helgi Jónsson segir frá sínu uppáhalds tónverki.
Violeta Urmana og Vínarfílharmónían flytja Ruckert söngva Gustavs Mahler. Upptakan er frá árinu 2004, stjórnandi er Pierre Boulez.

Í Sagnaslóð er víða leitað fanga. Sagt er frá mönnum og málefnum fyrri tíma. Umsjónarmenn: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson
Þættir frá vetrinum 2008-2009
Það var talinn nauðsynlegur áfangi í þroskagöngu kaupstaðabarna
að vera send til sumardvalar í sveit. Í þættinum rifjar Hendrik Ottósson upp kynni sín af mannlífi, landi og fólki í Mosfelssveitinni í byrjun 20 aldar. Umsjón Jón Ormar Ormsson Lesari með umsjónarmanni Sigríður Kristín Jónsdóttir


frá Veðurstofu Íslands

Svanhildur Óskarsdóttir les sálmana í hljóðritun frá árinu 1998.
Árið 1944 var tekinn upp sá siður hjá Ríkisútvarpinu að lesa alla Passíusálma Hallgríms Péturssonar á föstunni.

Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.
Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.
Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.
Litla flugan suðar um götur og garða vestanhafs og fer aftur til sjötta og sjöunda áratugarins með Connie Francis.
Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
Gestir þáttarins voru þau Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, og Stefán Vagn Stefánsson, formaður þingflokks Framsóknarflokksins og nefndarmaður í fjárlaganefnd Alþingis. Til umræðu var meðal annars fjármálaáætlun sem kynnt var í vikunni, húsnæðismál, kjaramál og verðbólga.
Umsjón: Alma Ómarsdóttir
Tæknimaður: Þráinn Steinsson

Útvarpsfréttir.
Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.
Kvikmyndasafn Íslands hefur verið í umræðunni undanfarið vegna fyrirhugaðrar sameiningar safnsins við Landsbókasafn. Það hefur vakið gagnrýni og undrun innan kvikmyndageirans. En Kvikmyndasafnið hefur líka verið í fréttum vegna samvinnu við RÚV í vinsælum þáttum eins og Stjörnubíó og Perlur Kvikmyndasafnsins. Þóra Sigríður Ingólfsdóttir er forstöðumaður safnsins og hún mætir í fimmu og talar um fimm götur í lífi sínu. Leikurinn berst frá Frakklandi í Hafnarfjörð með viðkomu í miðborg Reykjavíkur, á Grensásvegi og Kópavogslauginni.
Tónlist dagsins er svo tengd deginum, 28. mars.

Gísli Marteinn Baldursson og Sandra Barilli leiða hlustendur inn í laugardaginn, taka stöðuna á fólki og fréttum, spila góða tónlist og fá til sín vel valda gesti í skemmtilegt spjall.


Útvarpsfréttir.

Helgarútgáfan slær taktinn með þjóðinni á laugardögum. Kristján Freyr setur puttann á púlsinn, skrunar yfir allt það skemmtilega sem er á sveimi í menningu og mannlífi, gestir mæta með margs konar meðmæli og taktviss topptónlist fær að hljóma.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Hvernig hljómaði vikan? Ragga Holm og Vilborg fara yfir 30 vinsælustu lög vikunar á Rás 2, alla laugardaga frá 16-18. Þær rifja upp vikuna, líta í baksýnisspegilinn og skoða smelli fyrri tíma, spá fyrir um hvaða lög eru líkleg til vinsælda. Skemmtilegt spjall og fróðleikur í bland, en fyrst og fremst frábær tónlist.
Umsjón: Ragga Holm og Vilborg Kristín Þrastardóttir.
Þær Ragga Holm og Vilborg fara yfir 30 vinsælustu lög vikunnar í Vinsældalista Rásar 2.
Aðeins ellefu lög komust að þessa vikuna þar sem úrslit í Músíktilraunum taka við kl 17:00.
Þær fara yfir ný lög á lista, lög sem eru að koma aftur og síðan topp 5. Ragga kíkir í baksýnisspegilinn og fer 50 ár aftur í tímann þar sem lagið “Oh what a night” var efst á lista og Vilborg spáir nýju og epísku lagi sem líklegt til vinsælda í Spákúlunni.
Lagalisti :
Valborg Ólafs - Breathe With Me
Páll Óskar & Benni Hemm Hemm - Eitt Af Blómunum
Baksýnisspegilinn : (Oh what a night) December 1963 - The four seasons
Jessie Murph - Criminal
Kingfishr feat. Matt Corby - The Blade
Spákúlan : RAYE - Click Clack Symphony(Feat Hans Zimmer)
Topp 5 listinn :
5. Memfismafían & Guðmundur Pálsson - Syngdu
4. Warmland - All For All
3. Olivia Dean - Nice To Each Other
2. BRÍET & KK - Gleymmérei
1. U2 - Song Of The Future

Útvarpsfréttir.

Bein útsending frá úrslitakvöldi Músíktilrauna.
Kynnir er Ólafur Páll Gunnarsson.

Fréttir

Heiða Eiríks og Ingi Þór stjórna Næturvaktinni til skiptis. Þau spjalla við landann og spilar tónlist úr öllum áttum á laugardagskvöldum. Ljúfir tónar, brjálað rokk og óskalög úr öllum landshornum.
